Það tekur alveg jafn langan tíma að skrifa nýtt innlegg og að breyta hinu.
...og ef þú ert í skötuveislu og hefur svona lítinn tíma þá máttu varla vera að því að hrúga inn innleggjum á spjallið.
Last edited by Vargur on 23 Dec 2008, 22:35, edited 1 time in total.
trúðu mér, convict er mjög grimmur þegar þeir eru með hrogn og jafnvel enn grimmari með seiði, ráðast á allt sem þeir sjá, gerir viðkomandi fiska að taugahrúgum eða drepa þá. Convict par ætti bara/helst að vera í sér búri og ekki minna en 100L.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
það væri skynsamlegast að setja bara eitt par af dvergsíkliðum í þetta búr
reyndu að komast yfir java mosa og einhvern annan harðgerðan gróður og vertu ekki að setja neina stóra fiska í þetta búr
já en ég var að tala við einn frænda minn við erum komnir að niðustuðu að taka framm 500 lítra búr og rægta þá ég fæ par í mitt búr og hann fær svona 4 pör og eithvað meira og svo bara halda áfram ... svo erum við með skalla rægtun ég er reindar bara með einn skalla ætla ekki að fá mér fleiri hann er með 2 í 60 litrum
oki ég ætla bara að gleima þessu ætla bara að fá mér eina Dverg síkliðu sem passar í burið mitt .. það þíðir ekkert að gera þetta svo líður greiunum bara ílla ...
þú veist þá kannski að til að fá par af sköllum þá þarf maður að kaupa 4-6 litla skalla, bíða þangað til þeir stækka sem tekur kannski 3-4 mánuði svo kannski parast tveir þeirra. Svo er voða gott að lesa sér til um tilhugalíf skalla og hrogn og hvernig maður hugsar um seiðin, fyrstu vikurnar. Líka þægilegt að útvega sér nógu stórt búr fyrir fiskana og aðstöðu og svo framvegis.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
já, stakur convict getur verið tímabundið í þessu búri, með engum öðrum fiskum. Þeir verða fullvaxnir alveg 15cm.
Ef ég væri þú, þá myndi ég fara mér mjög hægt í þetta. Fá mér fiska sem passa í þetta 54L búr, svo sem guppy, corydoras, ancistrur og eplasnigla og safna fyrir stærra búri, svo þú getir fengið þér þær tegundir sem þú vilt. Dvergsíklíður eins og Ramirezi og Altispinosa geta verið t.d þessu búri en ekki með öðrum fiskum, því þeir eru frekar agressive. Ég er með mína (í 60L) altispinosa (par) með tveimur corydoras, banjo catfish og loricaria filamentosa. Prófaðu að gúggla latnesku nöfnin og lestu um fiskana sem þú hefur áhuga á.
Dvergsíklíður eins og Apistogramma eru mjög viðkvæmar fyrir vatnaskilyrðum og ekki auðveldar nema fyrir þá sem eru vanir og búnir að vera í bransanum í þónokkurn tíma.
Það verður alltaf að passa upp á vatnaskilyrðin hjá fiskum, sérstaklega þeim sem eru viðkvæmir og þessvegna er rosalega gott að lesa sér til um þær tegundir sem maður er hrifin/n af.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Jáhá þú seigir nokkuð en ég er svo svakalega hrifin af Convict og var að pæla að hafa bara convigt og skallan í þessu búri þángað til að ég fæ mér 100 L búr það verður bráðum að ég fái mér 100 L búr væri kanski eithver sem væri til að gefa mér málin af 100 L búri ég var að pæla að seta upp hillur fyrir 100 lítra búr og þersvegna þarf ég að fá málin og svona bara ef eithver viet ´þau eða er með 100 L en alavegana þá lángar mig svakalega mikið í convect og skalla bara þá saman í búrinu mínu ég veit að skallar eiga ekki heima í 54 L það er bara rugl þesvegna er þetta búr bara tímabundið kanski nokra mánuði en alavegana þá er ég til í að fá mðer convect og bara kanski losa mig við skallan á meðan hafa bara convegt í burinu og bara gubbana sverðdragana og platty í 60 L búri sem ég fæ kanski hjá frænda mínum hann ætlaði að redda mér 60 lítra búri þesvegna ætla ég bara að seta þá í þetta búr sem hann ætlaði að redda mér ...