hvernig þurkið þið sandinn???

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

hvernig þurkið þið sandinn???

Post by Bob »

smá pæling hérna. ég var að taka sandinn úr 180L búrinu og setti grófari möl í staðinn. nú þarf ég að þurka þennan fína sand því ekki tími ég að henda honum.

Hvernig hafa spjallverjar verið að þurka sand? hver er ykkar reynsla að virkar best?

er bara með sandinn í fötu eins og er en þarf að nota fötuna fljótlega aftur hehe...

takktakk
Ekkert - retired
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þú getur t.d. sett þunnt lag í ofnskúffu og bakað í ofninum í smá stund.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

hmm já. það gæti virkað.. spurning hvað konan myndi segja við því hehe
Ekkert - retired
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þú getur sagt henni að aðrar konur geri svona :D
Hægt að setja smjörpappír í botninn.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

setti fötuna á rörin í hitakompunni og hræði reglulega í, tók hellings tíma!
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Hef alltaf sett hann bara í kassa og inní geymslu(hef ekki mikinn sand í kassanum bara þunnt lag)
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Allt saman góð ráð. en....

1. á ekki smjörpappír eða neitt sem ég get sett undir sandinn þegar hann fer inní ofn nema setja hann beint á skúffuna.

2. ef ég færi að fara með eþtta inní hitakompu þá mun það verða einhvað skrautlegt. sandurinn er í svo lélegri fötu og hún er svo mjó að það að reyna að hræra í henni væri eylíft ves.

3. ég á ekki geymslu til að geyma sandinn í í kössum hehe

damn

Er í lagi að setja sandinn inní ofn beint á sona svarta plötu?? s.s. þessar skúffur þarna
Ekkert - retired
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

það er nú ekki flókið að kaupa smjörpappír :?
kristinn.
-----------
215l
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

true.... :p leti í mér. er heima að flokka sand......... :roll:
Ekkert - retired
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þú þarft ekkert endilega að nota smjörpappír, ég nefndi það bara ef konan væri með einhver uppsteit.

Mér finnst þú nú gera fullmikið mál úr þessu :P
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

já en núna erhún í vinnuni sko . og ég heima :) þannig að ég get notað ofninn :) hehe

now how does one turn that thing on... :P
Ekkert - retired
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég er sammála ástu, þú ert í ótrúlegum vandræðum með svona einfaldan hlut :)

Ef mér lægi á að þurrka sand myndi ég líklega bara dreifa úr honum á handklæði eða svartan plastpoka eða eitthvað svoleiðis og láta hann þorna þannig. Aðal málið er bara að dreifa úr honum og lofta um hann, þá tekur þetta enga stund. Að henda honum inní ofn er algjör vitleysa finnst mér :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

:oops:var nú bara að spyrja hvernig fólk gerir þetta ef það gerir þetta yfir höfuð :) er einhvað að láta mér leiðast hérna heima. afaskið :)
Ekkert - retired
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Alls ekkert illa meint - og alveg í góðu lagi að spyrja útí þetta!

Ég var bara að horfa á spaugilegu hliðina á málinu :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

;) þetta er allt í góðu keli.

ég er maður sem kann að taka húmor og skotum ;)

Hlæ stanslaust af vitleysunni í sjálfum mér sem og öðrum :) annars væri nú ekki gaman af lífinu? :)

en já.. það er mjöög svo langdregið að sigta í sundur sand.. var búinn að blanda saman hvítum fínum sandi og hálf rauðum grófum sandi.. er að sigta þá í sundur núna.. sjiiii. tímafrekt. aðalega þar sem maður er með skigti á stærð við 2 sprit kerti í mesta lagi. :roll:
Ekkert - retired
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

af hverju ætti maður annars að þurrka sand ?? sé að það eru greinilega margir með reynslu af því
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

svo að hann mygli ekki þegar hann er í geymslu.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

uss aldrei myndi ég nenna því þegar sandur kostar klink og þetta virðist tímafrekt vesen :? en það er kannski bara ég
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég þurrka venjulega ekki sand sem ég er að geyma.. Set hann bara í lokaða fötu og skola þegar ég ætla að nota hann aftur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
kiddicool98
Posts: 907
Joined: 04 Sep 2008, 16:13
Location: 104 rvk
Contact:

Post by kiddicool98 »

Andri Pogo wrote:uss aldrei myndi ég nenna því þegar sandur kostar klink og þetta virðist tímafrekt vesen :? en það er kannski bara ég
sammála!!!
kristinn.
-----------
215l
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég þurrkaði einhverntímann heil ósköp af sandi en hvers vegna man ég ekki.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

hehe þetta er ekki þess virði. er að flokka sandinn í sundur núna. ættla ekkert að þurka hann. ættla að nota einhvað af honum í búr sem ég var að fá. veit bara ekki hvort ég noti fína hvíta sandinn eða grófa rauða sandinn :)

any ideas? er að fara að setja kribba par og svo annað par. alveg búið að stela úr mér nafninu. eru frekar litlaar og hrigna í kuðunga og skeljar. ekkert alltof litmiklar samt. brúnar með svörtum röndum...

þetta er allavega planið eins og er :)
Ekkert - retired
User avatar
Ragnarvil
Posts: 122
Joined: 26 Dec 2008, 03:46
Location: Kópavogur / Keflavík
Contact:

Post by Ragnarvil »

En að vefja honum inn í handklæði og skella á ofninn ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég skelli mínum sandi í bala og læt hann standa út á svölum og aldrei neitt problem.
Ef ég geymi sand innandyra þá moka ég honum í fötur og læt þær standa loklausar á hlýum stað og sandurinn þornar í rólegheitunum.
Ég mundi aldrei láta sjá mig moka sand inn í ofn. :)
Post Reply