Sikliðu spurningar

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Sikliðu spurningar

Post by Bob »

Jæja. það hlaut að koma að því. maður er orðinn of veikur fyrir Sikliðunum. er að pæla í að byrja nú hægt og fara ekki of geist í þetta en vantar samt svör við nokkrum spurningum fyrst.

Ég ættla að byrja með eitt kribba par og kanski eina aðra týpu af þessum smáu undir 10 cm sikliðum. Gengur ekki alveg að hafa þannig elskur í 60L búri?
erum að tala um mest 2-3 pör. s.s. 6 fiskar mest í heildina. enginn þeirra yfir 10-12cm.

Hvort er betra fyrir mig þá að nota mjög fínan hvítann sand í botninn eða semi grófa rauða möl eða einhvað annað??
fíni sandurinn er bara mjööög fínn. en þessi rauði er sona 1-3mm möl.

ég veit að mig langar í kribba par.
Svo er önnur týpa sem ég ættlaði mér að fá mér en búið að stela nafninu alveg úr mér. eru brúnir fiskar með dökkum röndum. fást í dýragarðinum. þeir hrygna mikið í kuðunga.
Einhver hugmynd um skemtilega fiska til að hafa með þessum 2 pörum?

Hvernig gróður mælið þið með í svona smásikliðu búr?

Hvernig hitastig er mælt með fyrir svona síkliður? bara venjulega 25-27°c eða ?

Með fyrirframm þökk
Hjalti
Ekkert - retired
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

2-3 pör ganga aldrei í 60 lítra. Eitt par er sennilega alveg max í það.
Þú gætir prófað par af friðsömum dvergsikliðum og kannski nokkrar tetrur eða aðra smáa fiska með þeim.
Reyndar mundi ég í þínum sporum setja kribbapar bara í 180 lítra búrið, það ætti að passa fínt þar.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Nafnið á hinum sem ég var búinn að gleyma er víst "Lamprologus multifasciatum"

ok. en þessar síkliður eru svo smáar. hvað er það sem orsakar að 60L er of lítið? bara pæling í mér. fæ mér ekki 2-3 pör ef það er alltof mikið. væri gaman ef maður gæti komið allavega einu pari í það.

hvort ég fari að setja kribbana í 180L er spurning, þarf að skoða það.

Einhverjar uppástungur um flottar dvergsíkliður sem gætu gengið í sona lítið búr?
Ekkert - retired
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

2-3 kuðungasíkliður gætu gengið í 60l. Svo væri bara smá vinna við að halda vatninu hreinu og fínu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

L. multifasciatum gætu kannski verið nokkrir saman í 60 lítrum. Ég er með par af L. occelatus í 60 lítrum og þar er ekki pláss fyrir annað par. Ég reyndi að vera með 2-3 pör í 110 lítra búri en það gekk ekki.
Fyrir hvert par þá þarf að vera sæmilegt botnpláss.

Hér er ágætis lesning um lítið búr. Reyndar meters langt.
http://fiskabur.is/myndir_vefur/Greinar ... _grein.htm
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Neolamprologus multifasciatus

er þetta ekki kuðungasíkliður eins og þú nefndir?.

og eru þær svona sóðalegar? eða bara viðkvæmar fyrir lélegu vatni?
Ekkert - retired
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ok. flott er. var einmitt búinn að lesa þetta vargur. las það aftur yfir og hljómar sniðugt. en kanski er 60L of lítið til að skipta þessu svona upp. enda er það bara með 57cm*30cm botn.

Spurning hvort maður setji þá 1 kribba par í 180L búrið og sjái hvort einhvað gangi þar hjá þeim og svo 1 par af multifasciatus í 60L búrið.

Segiru að tetrur gætu gengið í það búr til að fylla uppí það?

Hvað með að setja bardagafisk í það? hversu slæm hugmynd væri það nú? hehe
Ekkert - retired
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég þekki ekki multifasciatus nógu vel til að geta sagt til um hvort aðrir fiskar gangi það með en ég veit að occelatus kuðungasiukliðan leyfir ekki aðra smáa fiska í búrinu.

Þú ættir kannski að skoða frekar amerísku dvergana, td. Mikrogeophagus og Apistogramma, það er meiri séns að vera með aðra fiska með þannig pari.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ok flott er :) alltaf lærir maður einhvað nýtt :D

er nú bara að dunda mér í að setja búrið upp eins og er. áhvað að setja grófa rauða sandinn. aðeins skemtilegri en þessi hvíti fíni. búinn að setja 3 steina og vantar svo nokkrar plöntur líka. Byrja á því að hafa bara bardagakallinn í búrinu þar sem hann þarf að búa í gotbúri eins og er. hann er alltaf að ráðast á alla :evil:

Ættla að skoða þetta. getur verið að maður skelli sér á Multifascia par eða þá að maður fari einfaldlega bara í Apistogramma agassizii eða microgeophacus ramirezi gold. eða einhverja af Apistogramma / microgeophacus týpunum. Maður þarf kanski bara að prófa sig líka áfram.

Segið mér samt eitt. nú er ég með einhverjar plöntur í 180L búrinu. þar á meðal eina sem er svona bara eins og loðinn stilkur .. s.s. grænn stilkur með fullt af mjóum og 1-2cm löngum bloðum á útum allt. skiptist á nokkrum stöðum í fleiri stilka.. get ég ekki skorið einn af þessum hliðarstilkum af og gróðursett í nýja búrið?
Ekkert - retired
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þú getur tekið afleggjara af flestum stilkplöntum. Bara klippa og stinga afleggjaranum í mölina.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

ok profa það. Takk :)

Ættla að reyna að koma þessu búri af stað í kvöld. og reyna að skoða þetta aðeins með mini sikliðurnar hverjar verða fyrir valinu :) ekki asa útí neitt. hehe

öll hints og tillögur vel þegnar :)
Ekkert - retired
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

jæja ættli ég endi ekki með því að fá mér Lamprologus Multifasciatum
---Kuðungasíkliður

og fái mér svo kanski eitt kribba par í 180L búrið og sjái hvernig það dafnar þar..

Ættla að leyfa Multifasciatum-unum að vera nánast einum í 60L búrinu. því það mun nátturulega ekki vera tómlegt til lengdar þegar einhver seiði koma :)

Mun eflaust setja 1-2 ancistrur í búrið líka og sjá hvort að bardagakallinn geti verið með þeim allavega einhvað þar til maður fynnur einhverja 10L krukku undir hann... :roll:

Verður gaman að prófa þetta :)

Þegar maður losnar við bardagakallinn úr búrinu þá veit maður ekki. kanski getur maður sett eitt par af minstu dvergsíkliðunum með í það.. maður sér bara til :)

Kem með myndir þegar allt er komið af stað og sýni ykkur :)
Ekkert - retired
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það er ágætt að vita er að þessir fiskar þurfa að hafa kuðunga hjá sér, gott að setja svona 5 kuðunga í búrið svo þeir geti valið sér kuðung og hafa bil á milli þeirra. Þeir grafa mikið í sandinum og færa til kuðungana og geta grafið upp gróður. Þeir þurfa hart vatn, kuðungar og skeljar eða skeljasandur herðir vatn. Þeir geta verið mjög grimmir gagnvart fiskum sem koma nálægt yfirráðasvæði þeirra.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

allright :)

Annars koma sko þessar týpur til greyna eins og er.

Kuðungasíkliða:
Lamprologus multifasciatum - http://www.pbase.com/ricked_wicky/lampr ... ifasciatus___

Vest afrísk smásíkliða:
Kribbar - http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/Fis ... myndir.htm

Amerískar dvergsikliður:
Microgeophacus Rammirezi - http://fiskabur.is/myndir_vefur/Fiskar/ ... myndir.htm

Microgeophacus Ramirezi Gold - http://fiskabur.is/myndir_vefur/Fiskar/ ... myndir.htm

Nannacara anomala - http://fiskabur.is/myndir_vefur/Fiskar/ ... _grein.htm

Apistogramma Agassizii - http://fiskabur.is/myndir_vefur/Fiskar/ ... myndir.htm


Grafa amerísku dvergarnir sona ofaní sandinn líka?
maður verður bara að reyna að hafa kuðungana eins langt frá gróðrinum og hægt er svo þa ðverðir ekki ráðist á gróðurinn..
Ekkert - retired
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Flestar síklíður moka amk eitthvað, sérstaklega í kringum sitt yfirráðasvæði. Kuðungasíkliðurnar eru sérstaklega duglegar við það, þær grafa kuðungana sína ofaní sandinn þannig að bara opið sést.

Ef þú vilt mín meðmæli, þá myndi ég mæla með kuðungasíkliðum. Ég hef átt lamprologus ocellatus tvisvar sinnum og multifasciatus einusinni, og þetta eru ótrúlega skemmtilegar skepnur. Ég hafði í raun meira gaman af þessu en t.d. óskörum, þetta er svo miklir karakterar og þó þær séu örsmáar þá láta þær engan vaða yfir sig, þám hendina á manni :) Þetta eru einfaldlega með skemmtilegri fiskum sem maður getur verið með, og ekki skemmir fyrir að þær þurfa ekkert svakalegt pláss, hrygna auðveldlega og passa vel uppá afkvæmin sín.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Geggjað :) er einmitt að leita eftir svoleiðis skemtilegum fiskum :) mig langar nátturulega í svo einhverjar stórar síkliður seinna. en eins og er þá á ég bara ekki pláss undir þær :=)

segðu mér samt eitt keli. þegar þú varst með lampro's í búrinu hjá þér. varstu þá með mjög fínan sand eða sona semi fínan/grófan sand... s.s. fína möl...?

og þarf ég einhverja stóra kuðunga?
Ekkert - retired
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég var með frekar fínan sand - Það er þannig í tanganyika og er því náttúrulegast fyri þá. Þeir róta mikið í honum og það er partur af gamaninu að sjá þá dunda sér í því.

Ég var í smá vandræðum með að finna kuðunga fyrst, en endaði svo á því að kaupa mér bara bakka af sniglum í hvítlaukssmjöri. Eldaði fyrst sniglana og át, sauð svo kuðungana og smellti í búrið. Passa samt að sjóða ekki of lengi því þá leysast þeir upp.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

hehe góður. :) þetta kallast að redda sér :þ

Hlýt að fá einhverja kuðunga hjá dýragarðinum :)

en ég er já með tiltörulega fínan möl. svipað og er í búrinu í dýragarðinum. og þar hafa þeir gert svona gíga :) ef það gengur ekki þá á e´g bara pure sand. miög fínan sem ég get þá skipt út :)
Ekkert - retired
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég myndi hafa sand, ekki möl eins og í dýragarðinum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það hefur ekki verið mjög auðvelt að fá svona litla kuðunga en ég hef stundum fengið þá í Fiskó á sérlega góðu verði.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

jæja ég var að koma heim frá dýragarðinum. kom heim með 2 stk kuðungasíkliður. a.k.a. Lamprologus multifasciatus og 2 stk Kribba.

Fékk kuðungasikliðurnar með kuðungum. :) þegar hann ættlaði að veiða þær uppúr stukku þær inní kuðunginn sinn. þannig að ég fékk 2 kuðunga með :) svo á ég hérna 2 kuðunga í svipaðri stærð sem ég mun eflaust nota líka ofaní :)

keypti mér svo kókoshnetu fyrir Kribbana :) búið að gróðursetja og flottheit í kringum hana.
Ekkert - retired
Post Reply