Eplasniglar vs Bótíur

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Peta
Posts: 8
Joined: 07 Jan 2009, 21:19

Eplasniglar vs Bótíur

Post by Peta »

Hæ hæ
Mig langar til að varpa einni spurningu til ykkar.

Hver er ykkar reynsla af því að hafa Stóra eplasnigla og Bótíur í sama búri ?
Skiptir kannski máli hvaða Bótíur um er að ræða ?
Stærð Eplasniglanna skiptir örugglega heilmiklu máli.
Kannski gaman að láta fylgja hvursu stórt búrið sé ef þið hafið einhverja reynslu af þessu.
Hvort ég geti haldið Bótíunum frá Eplansniglunum með rækjugjöf eða einhverju öðru?
Fullt af spukuleringum.
Málið er að mér þykir voða vænt um stóru Eplasniglanna mína sem eru svo rosalega iðnir við þrifin og heimta voða lítið í staðinn. Gúrkubita við og við.
Þeir farinir að skríða upp í lokið og verpa þar.
En ég vil ekki að búrið fyllist af einhverjum brúnum littlum sniglum sem eru farnir að verpa útum allt sem villtust í búrið með gróðri sem ég setti í búrið.
Kveðja

Peta og Co
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég hef reynt bótíur og stóra snigla..... ekki gott.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Hvað gerist? :oops:

en er ekki í lagi að hafa corydora með eplasniglum? hehe
Ekkert - retired
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Corydoras ætii að vera í lagi, eða ég veit alla vega ekki til þess að það séu sniglaætur eins og bótíurnar.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Peta
Posts: 8
Joined: 07 Jan 2009, 21:19

Post by Peta »

Stóru eplasniglarnir sáu við Bótíunum og fóru að verpa svo nú hafa Bótíurnar nóg að éta, því það er fullt af littlum Eplasniglum útum allt búr :)
Svo þeir stóru fá örugglega frið í bili.

Mikið rosalega klárir Eplasniglar
Kveðja

Peta og Co
Post Reply