Ég er með 10 neon tetru og var með þær í 120l búrinu mínu og voru þær sýnilegar og fínar mjög lengi en svo þegar að ég fékk mér fleiri fiska (1 molly, 2 sverðdragar og 3 hvítar tetru (ghost)) síðan þá hafa þær verið í felum og varla fá sér að borða. Núna er ég með þær í 40l búri með 4 litlum ancistrum og þær liggja bara utaní dælunni eða undir grjótum
Eru þær kannski bara að venjast nýja búrinu en hafa orðið eitthvað smeikar í 120l búrinu ?
Hræddar neon tetrur
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Ég er einmitt með 10 cardinal tetrur og það var ekki nema þegar öll ljós voru slökkt í íbúðinni sem þær komu út. Annars voru þær eins og þú lýstir að fela sig undir dælunni, þær urðu svona hjá mér eftir vatnsskipti en þær hafa smám saman verið að koma úr skjóli, sérstaklega eftir að ég setti bakgrunn á búrið og aðra hliðina.