Brúskaseiði - furðuleg hegðun sem endar með dauða.

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Brúskaseiði - furðuleg hegðun sem endar með dauða.

Post by jeg »

Svo virðist sem mér ætli ekki að takast að halda þessum hóp á lífi.
En um 10 stk. eru dauð og byrjar þetta með furðulegum sundaðferðum.
Seiðin virðast ekki stjórna sér. Synda á hvolfi og svo drepast þau.

Er með þau í flotbúri við dæluna svo það er hreifing á vatninu.
Ég ætti kannski að skella þeim bara úr flotinu og í búrið hjá Gúbbunum en þar er bara ekki neinn hitari og munurinn 2-3 °C
En kannski meira súrefni ef það það er málið að það gæti verið skortur á því.
Því þar er dæla sem gerir loftbólur.
Hef verið að gefa eingöngu gúrkusneið og er hún ekki lengi í en þó u.þ.b. 1/2 ljósatímann.
Kannski er ég bara svona óheppin að þetta sé óvenju viðkvæm eintök ?

Hjálp væri vel þegin.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sést eitthvað á þeim? Belgjast seiðin upp eða eitthvað svoleiðis?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Nei ég var einmitt að reyna að sjá hvort það sægist eitthvað athugavert en ég sé ekki neitt.
Ef eitthvað er þá virka þau kannski grennri / magaminni, eins og þau nærist minna.
En fyrstu skiptin sem gúrkan var í boði fóru svo til öll seiðin á hana strax svo þau átu.
Ég er farin að hallast að því að þau séu bara léleg eintök en það er fúllt ef helmingurinn er lélegur.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Fór að reyna að sjá hvort þau væru uppbelgd en gat ekki séð það þó gæti það verið.
En mér sýnist þau frekar vera innfallin eins að þau hafi ekki verið að næra sig.
Getur stíflun valdið því ?
Getur verið að þau séu stífluð ?
Og hvers vegna stíflast þau ?
Meira en helmingur seiðanna er dauður.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þau horast ekki ef þau eru stífluð.. Eru vatnsgæðin góð hjá þeim?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
IVAR
Posts: 42
Joined: 10 Jun 2008, 10:37

Post by IVAR »

þetta er annaðhvort eða bæði að það er loftleisi og næringarleisi.
ancistruseiði þurfa nokkuð skítugt búr s.s smá þörungur og skít..
(ég meina það hjálpar helling)

settu nokkra hella og skelltu þeim til gúbbíana..

:D
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Kiddi sagði mér frá góðu bragði til að fóðra ungana, setur lítið búr (20lítra) í glugga þar sem sól skín á það = hellingur af þörung
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Ég er nokkuð viss um að súrefnisflæðið sé ekki næjanlegt.
Gaf gúrku samviskusamlega en það virðist ekki hafa dugað.
En geri tilraun með að skella restinni í gúbbabúrið.

En svona lærir maður með því að reka sig á.
Takk.
Post Reply