Page 1 of 1
Roapfish
Posted: 01 Oct 2006, 10:20
by Ólafur
Þar sem Roapfiskarnir minir tilheyra ekki sikliðum þá stofna ég sérstakan þráð um þessa fiska og bið alla sem geta sagt mér eitthvað um þá að skrifa hérna
Þeir eru mjög sýnilegir hérna hjá mér og eru oft að synda á móti straumi frá hreinsidæluni,virðast vera að leika sér.
Veit ekki um kynin en á eftir að telja uggana eins og nafni benti mér á en svo er spurningin,fjölga þeir sér i búrum?
Posted: 03 Oct 2006, 16:03
by Ólafur
Sjáið þið hvernig hann fer ofani hreinsidæluna.
Rakst á hann fyrir tilviljun þarna og rétt náði mynd áður en hann hvarf ofani
Posted: 03 Oct 2006, 17:44
by Ásta
Hvað eru þeir langir hjá þér?
Posted: 04 Oct 2006, 01:17
by Ólafur
Einn er svona 12 til 15 cm en hinn nær 20
Posted: 06 Oct 2006, 14:18
by Ólafur
Svona geta þeir hangið i gróðrinum
Posted: 06 Oct 2006, 14:25
by Vargur
Það er eins gott að þú passir þig þegar þú ert að grisja gróðurinn.
Hvað kostar svona kvikindi vanalega ?
Posted: 06 Oct 2006, 14:42
by Ólafur
Ég borgaði 1900 kall fyrir stykkið i Vatnaveröld og keypti tvo
Hverni hafa Óskararnir þinir það? Minir bara stækka
Posted: 06 Oct 2006, 15:03
by Vargur
Óskararnir vaxa eins og arfi á fjósahaug enda alltaf étandi hjá mér.
Posted: 06 Oct 2006, 15:08
by Ólafur
Hehe lika hér
Posted: 07 Oct 2006, 14:11
by Ólafur
Sá þá éta i fyrsta sinn og náði mynd þegar þeir vori i rækjuveislu.
Annar þeirra sést hér að gæða sér á einni slikri.
Posted: 07 Oct 2006, 16:03
by Ólafur
Og svo er að kikja allstaðar
Posted: 07 Oct 2006, 16:22
by Hrappur
já þeir eru gríðarlega skemmtilegir þessir . !!
eru þeir búnir að finna sér samastað í hreinsidælunni hjá þér ?
Posted: 07 Oct 2006, 17:27
by Ólafur
Nei það held ég ekki en þeir kikkja þar við af og til
Annars eru þeir mikið á ferðini i búrinu sjálfu.
Maður veit aldrei með nóttina það getur vel verið að þeir hafi samastað i dæluni einmitt á nóttini.
Ég er búin að kjaftloka búrinu. Búin að sniða plastlok fyrir öll göt og sniða göt á lokið fyrir leiðslunum úr tunnudæluni
Ekki veitir af
Posted: 08 Oct 2006, 08:55
by Ólafur
Þessi mynd var tekin núna áðan
Posted: 10 Oct 2006, 07:54
by mundivalur
Þú þekkir kk og kvk með því að skoða anal uggan
, man samt ekki hvor er með lengri en það er mikil munur á svipað stórum fiskum,Þetta eru fiskar sem ég byrjaði á með gullfiskum
Vissi ekkert hvað þetta var,svo eina nóttina var ég frammi í stofu og allt var brjálað í 40l búrinu þá var állinn búinn að bíta sig fastann í slörið á gulla og vanntaði slatta af því daginn eftir
Svo fóru þeir með einhverju molly dóti og þeir týndust,þá var það Convict það var lala nema seiðin voru horfin á 2. nóttum,já svo voru þeir oft týndir líka. Endaði með því að ég skipti þeim,en það var oft gaman að horfa á þá synda og eta
Posted: 10 Oct 2006, 14:36
by Ólafur
Já það er naumast. Minir eru ekki svona villtir enn
enda með amerikusikliðum og þær láta nú ekki vaða neitt yfir sig.
Já ég var búin að lesa mér til um kynin en hef ekki veitt þvi neina sérstaka athygli.
En eins og er er allt i takasta lagi.
Posted: 14 Oct 2006, 10:28
by Fishy
bara að spurja, hvað er vatnaveröld?
þessi fiskar eru crazy flottir
Posted: 14 Oct 2006, 16:05
by Ólafur
Vatnaveröld er gæludýrabúð i Keflavik
Posted: 14 Oct 2006, 17:04
by Fishy
er hún með heimasíðu? hvar er hún til húsa?
Posted: 14 Oct 2006, 18:21
by Ólafur
Vatnaveröld ehf
S. 421-7095
Hafnargata 18
230 Reykjanesbær
Posted: 16 Oct 2006, 09:57
by Vargur
Posted: 27 Oct 2006, 15:00
by Ólafur
Jæja það eru fréttir héðan að stærsti Óskarin minn tók annan Roapfiskin i forrétt núna á dögunum
Sá einn morgunin svona cm bút sem eftir var af greyinu.
Já þessir Óskarar koma á óvart þvi Snakeheddið var ekki undir 30 cm langur svo þetta hefur verið slagur en ég varð ekki vitni að þessu en Óskarin er eini fiskurin i búrinu minu sem hefur getað þetta.
Posted: 30 Oct 2006, 16:28
by Ólafur
Nú verð ég að leiðrétta mig en haldiði ekki að vinurin sem ég taldi látin og étin hafi ekki birst ljóslifandi i gær öllum til mikilla gleði
.
Hafði hann haldið sig viðs fjarri i langan tima svo ég var viss um að hann hafi verið étin enda veit ég ekki þá hvað ég sá þarna um daginn sem minti mig á bút úr svona fiski sem lá á botninum.
En hvað um það mikið gott að hann skuli hafa komið fram og leiðrétti mig hér með.
Kv Ólafur
Posted: 31 Oct 2006, 07:23
by Vargur
He he, hefur búturinn sem þú sást ekki bara verið afleggjari og vaxið nýr fiskur úr honum.
Posted: 31 Oct 2006, 13:30
by Ólafur
Svei mér þá jú það hefur bara verið eitthvað svoleiðis
en ég get ekki imyndað mér hvað þetta var sem ég sá þarna forðum nema þetta hafi verið einhverskonar uppblásin úrgangur úr Óskarnum en hann skitur ekki neinum smákögglum stundum
Posted: 05 Feb 2007, 16:50
by Ólafur
Hérna kemur alveg ný mynd af öðrum þeirra sem ég á.
[img][img]
http://i129.photobucket.com/albums/p228 ... G_6581.jpg[/img][/img]