Mér finnst skemmtilegra að sjá aðeins svona grimmari myndir af Pirönum, þetta eru allt eitthvað svo miklar dúllur hjá ykkur. En mér finnst lýsingin skemmtileg á fyrstu myndinni og sömuleiðis litirnir í fisknum.
Já og eitt annað. Það pirrar mig rosalega mikið hvað maður sér fiskinn á fyrstu myndinni detta úr fókus þegar maður horfir eftir munninum á honum. Betra ef skerpan þar hefði alveg haldist út.
sindris wrote:Já og eitt annað. Það pirrar mig rosalega mikið hvað maður sér fiskinn á fyrstu myndinni detta úr fókus þegar maður horfir eftir munninum á honum. Betra ef skerpan þar hefði alveg haldist út.
Ég er sammála þessu. Stundum eru myndir hjá mér svona. Hvað gerir maður til að laga þetta ?
Vil svo benda mönnum á edit takkann vilji þeir breyta eða bæta við innleggi strax á eftir öðru innleggi frá sér.
Já, þetta fór líka í taugarnar á mér. Ástæðan er að DOF var aðeins of lítið þannig að hann var ekki allur í fókus.
Þetta er ein af fyrstu myndunum sem ég tók með 100mm f2.8 macro sem ég fékk í gær, langaði bara að monta mig þótt að myndin væri kannski ekki sú besta. Þær skána vonandi myndirnar eftir að ég er búinn að taka fleiri með nýju græjunum
Til þess að laga þetta borgar sig að stækka ljósopið bara til að fá dýpra DOF - Eða fókusa manually.
Hérna sést ágætlega hvað DOF er ótrúlega lítið þegar maður er með ljósopið galopið:
Tók þessa líka í gær... Sýnir jafnvel betur hvað DOF er lítið... réttsvo augað bara í fókus
Sem minnir mig líka á það... Ég þarf að þrífa glerið á búrinu áður en ég tek fleiri myndir, ekkert gaman að hafa einhverjar þörungaklessur fyrir framan fiskana..
Þrengir maður ekki ljósopið til að auka fjarlægðarsviðið sem er í fókus? Þannig virkaði það allaveganna í gamladaga. Annars myndi maður bara skrúfa ljósopið í efstu stöðu því það vantar jú alltaf meiri birtu.
Jú, maður minnkar ljósopið til að breikka DOF - þar af leiðandi kemst minna ljós inn og shutter hraðinn minnkar... Maður verður einhversstaðar að komast að málamiðlun, það er því miður ekki búið að gera ljósmyndatæknina þannig að þetta gerist allt að sjálfu sér