Ég er að fara að flytja í dag, fiskabúrið kemur með mér. Um er að ræða 160L. Ég var að velta fyrir mér hvort það sé í lagi að hafa sandinn í búrinu á leiðinni á nýja heimilið? Leiðin er ekki löng, eitthvað um 3 km held ég.
Endilega svara sem fyrst svo ég geti flutt búrið örugglega
Já, það ætti alveg að sleppa. Passa bara að undirlagið sem þú flytur búrið á sé 100% slétt, annars er hætt við að það komi álag á það og einhver platan brotni.