Page 1 of 1

Walking catfish farinn að heiman.

Posted: 18 Apr 2007, 21:43
by Vargur
Jæja eins og fundargestir tóku eftir í gær þá skellti ég Walking catfish í sumarbúðir í Fiskabur.is. Skepnan verður þarna í pössun (hjá mér sjálfum) í nokkra daga til að halda Langa-Sela Arowana félagsskap og til sýnis fyrir gesti verslunarinnar.

Hér eru nokkrar myndir að vinunum.

Image
Image
Hópsund

Image
Image
Þeim kemur fínt saman þarna félögunum en hinir fiskarnir í búrinu eru ekki jafn sáttir.

Posted: 18 Apr 2007, 21:44
by Mr. Skúli
enda var hann að leggja alla minni fiskana í einelti í gær!.. :D

Posted: 18 Apr 2007, 21:45
by Ásta
Hann er ótrúlega lipur í vatninu miðað við vöxt.
Veistu nokkuð hvað hann getur synt hratt m.v. eðlilegar aðstæður?

Posted: 18 Apr 2007, 21:46
by Gúggalú
hvað kosta svona fiskar, s.s. í þeirri stærð sem þeir eru þarna á myndunum ? Agalega flottir og Arrowanan er eitthvað svo tignarleg

Posted: 18 Apr 2007, 21:46
by Vargur
Hann er ótrúlega lipur í vatninu miðað við vöxt.
Veistu nokkuð hvað hann getur synt hratt m.v. eðlilegar aðstæður?
Nei, bara að hann syndir hraðast þega Synodontis kattfiskarnir eru í sigtinu. :)
hvað kosta svona fiskar, s.s. í þeirri stærð sem þeir eru þarna á myndunum ? Agalega flottir og Arrowanan er eitthvað svo tignarleg
Framboð og eftirspurn hefur með verðið að gera, sennilega kostar svona Arowana (plús 40 cm) 40-50.000.- ef flytja ætti hann inn en Walking catfish mun minna.

Posted: 19 Apr 2007, 05:09
by ~*Vigdís*~
Þetta eru nú meiri skrímslin :D
Virklega gaman að sjá þessa fiska og hvað þau eru stór :hehe: