Smábúr Vargs

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Smábúr Vargs

Post by Vargur »

Ég og nokkrir félagar í Skrautfisk erum að brasa við að koma upp smábúrum. Þetta er ansi skemmtilegt verkefni, búrin eru tæpir 25 lítrar og því ansi krefjandi að velja fiska í þau.

Ég setti mitt upp í gærkvöldi. Skellti ljósum sandi í það og rót með áföstum Anubias plöntum. Búrið verður líklega dælulaust en ég set sennilega hitara í það svo hitastigið haldist stöðugra.

Image
Búrið komið á sinn stað heima hjá mér.

Ég skelli svo einhverjum fiskum í búrið á morgun.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Af hverju er búrið ekki fullt? :lol:
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er ekki fullt vegna þess að ég skellti því upp í elhúsinu með vatni og alles og hélt svo á því fram í stofu.
Ég ætla ekki að setja meira vatn í það fyrr en ég er búinn að hola í það öllum gróðri osf sem á að vera því vatnið sullast upp þegar ég set minn karlmannlega framhandlegg ofan í búrið.
svavarm
Posts: 50
Joined: 07 Jan 2009, 23:27

Post by svavarm »

Hvað ætlarðu að gera í sambandi við lýsingu?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég ætla bara að vera með einfaldar plöntur til að byrja með þannig líklega finn ég bara einhvern lampa í Ikea en sé svo til seinna meir, ég er með ónotaða rafmagns dós beint fyrir ofan búrið þannig möguleikarnir eru endalausir.
User avatar
Bob
Posts: 531
Joined: 07 Dec 2008, 21:06
Location: Reykjavík

Post by Bob »

Lýst vel á þetta hjá þér :) keep us posted
Ekkert - retired
User avatar
Kitty
Posts: 581
Joined: 06 Jul 2007, 16:36
Contact:

Post by Kitty »

Spennandi að fylgjast með þessu ! Ef þú ert ekki með neina dælu hvernig heldurðu loftskiptunum í lagi ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Dæla er ekki nauðsynleg ef maður velur fiska við hæfi í búrið.
Ég skellti fyrstu fiskunum í búrið, par af dverg regnbogafiskunum gullfallegu og þremum Endler kk og einni kvk (bíð eftir fleiri kvk).
Búrið virðist risastórt þegar þessir smáfiskar komu í það, þetta er líklega svipuð hlutföll og að vera með fimm óskara í 18.000 lítrum. :)
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

:) svakalega flottir þessir endlergúbbíar!
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég skellti mér í Ikea og fann hentugt ljós á smábúrið, fullt af ljósum þar sem má útfæra fyrir fiskabúr.
Ljósið sem ég keypti passar búrinu ágætlega en lýsingin af þessum smáperum er ekki mikil og dreyfist illa, lúkkið er samt ágætt og þetta dugar þar sem ég verð bara með einfaldan gróður í búrinu.

Image
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

70W MH fær mitt athvæði! :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

mér finnst þetta nú bara koma helvíti vel út svona. Ljósið lookar allavega vel og stærðin á ljósinu passar búrinu.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Fyrstu vatnsskipti í smábúrinu, skipti um ca 25% af vatninu. Skellti líka hitara í búrið og það er í tæpum 25°. Nú bíð ég bara spenntur eftir seiðum hjá endlerum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Aftur vatnskipi 30.02 (ca 50%) og bætti við í dag einum endler kk frá kela, tók burtu tvo af þeim sem fyrir voru og setti í annað búr. Planið er að vera með tvær endlerlínur í gangi svo ég geti crossað inn á í framtíðinni (reyndar er ég með þriðju línuna í hobby herberginu en hún er spari enn sem komið er).
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Bætti í búrið þremum Bumlebee rækjum.

Image
(mynd af netinu)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Vatnsskipti í smábúrinu.
Rækjurnar þrjár virðast hafa það fínt og ég sá endlerseiði í búrinu um daginn.
Þörungur er aðeins að angra mig, um er að ræða grænan nokkuð fínan loðin þörung sem leggst á rótina og núna líka á plönturnar.
Kann einhver ráð við þessum þörung ?
hrafnaron
Posts: 402
Joined: 23 Feb 2009, 18:56
Location: Reykjavík

Post by hrafnaron »

ummmm of leingi kveigt ljósið.... veit annars ekkert um þetta..... enn ég ætla samt að fá mér svona búr þegar ég á efni á því :P veit um mjög góðann stað fyrir það :P
ertu ekki með neina hreinsi dælu í þessu búri eða?
Rena Biocube 50: tómt eins og er
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta er líklega sama og ég fékk í mitt búr.. Amano rækjur og SAE éta þetta með bestu lyst. Þörungurinn er frekar laus á þannig að það er hægt að ná mestu af með því að flækja þörunginn í tannbursta t.d. og losna við megnið þannig.

Svo hverfur hann fljótt ef ljóstíminn er minnkaður.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég hafði eimitt ljósið undir grun og er búinn að stytta ljósatíman mikið en vandamálið er sennilega dagsbirta við búrið. Þetta lagast vonandi þega betra jafnvægi kemst í búrið og ef ég reyni að vera duglegri við að byrgja það á daginn.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er búinn að vera að berjast við leiðinda cyanobakteríu í búrinu og held að ég sé að ná henni niður.
Tók endlerana úr búrinu til að leifa rækjunum að blómstra enda tvær af þremum með egg undir sér um daginn og nú er ég farinn að sjá lítil rækjubörn hendast um búrið.
User avatar
M.Logi
Posts: 162
Joined: 31 Mar 2009, 19:53
Location: Espoo, Finnland

Post by M.Logi »

Ég var að spá í að gera svona lítið gróðurbúr með bara rækjum í.

Þarf ekki dælu fyrir rækjurnar?
User avatar
henry
Posts: 583
Joined: 13 May 2009, 14:48
Location: Reykjavík

Post by henry »

Skemmtilegt project. Hvað ertu að skipta oft um vatn og hve mikið í einu?

Gangi þér vel með bakteríurnar
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Dæla er ekki nauðsynleg, ég reyndar skellti pínulítilli en nokkuð kröftugri dælu sem mér var gefin í búrið.
Ég skipti bara um ca 30% af vatninu vikulega núna en það er kannski óþarflega mikið þar sem ekkert fóður er gefið í búrið.
User avatar
prien
Posts: 562
Joined: 02 Jul 2009, 22:00
Location: Innri Njarðvík

Post by prien »

Ein spurning með svona lítil búr.
Er ekkert of mikið að hafa svona stóra rót í þetta litlu búri, þ.e.a.s. of mikið af lífrænu efni sem rotnar?
Kv:prien
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

Nei, rætur sem eru ætlaðar fyrir fiskabúr eru búnar að liggja í vatni í óratíma (í náttúrunnu), þá er allt lífrænt í rótunum löngu búið að rotna.
Post Reply