Ódýrasta og besta fiska-, salamöndru-, og froskafóðrið!!!!!!

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Mörðurinn
Posts: 133
Joined: 25 Feb 2009, 17:19

Ódýrasta og besta fiska-, salamöndru-, og froskafóðrið!!!!!!

Post by Mörðurinn »

1599 ISK baukurinn (kostar 1850 hjá Tjorvar)
Image
Byltingakennt fóður frá New Life Spectrum. Einfaldlega vandaðasta og besta fiskafóðrið í heiminum! Aðeins er notast við hágæðahráefni á borð við krill-átu og síld, frekar en hefðbundið fiskimjöl eins og flestir aðrir framleiðendur, til að tryggja hámarksnæringu og hreysti. Hvort sem um er að ræða samfélagsbúr eða sérhæft siklíðubúr uppfyllir New Life Spectrum þarfir allra fiska - kjötæta, grænmetisæta og alæta. Fjórir náttúrulegir litaukar í fóðrinu, m.a. spirúlína þörungur, tryggja að fiskurinn skarti fegurstu liti og viðbættar fiskiolíur og hvítlaukur tryggja bestu heilsu og sjúkdómsviðnám. Engin hormón eru notuð í fóðrinu. Reyndu og þú sérð mun innan tíu daga!!

H20 Stable Wafers eru fyrir alla botnfiska og botnsugur. Tilvalin næring fyrir þörungabíta, seiði, botnsugur, einkum þá sem éta á nóttunni. Oblátarnir leysast ekki upp í vatni fyrr en eftir um það bil sólarhring, en það dregur stórlega úr mengun og óþrifum. Þótt margir botnfiskar séu grænmetis- og þörungaætur þá éta þeir einnig mikið af vatnalífverum til að fá nauðsynleg prótein. Búrlíf tryggir yfirleitt ekki nægt framboð af þörungum til að mæta þessari þörf en samsetning New Life Spectrum Freshwater H20 Stable Wafers gerir það hins vegar og svo um munar!

Plegginn minn og salamöndrurnar eru æstar í þetta fóður, mæli eindregið með þessu! Ég hef líka verið að gefa diskusunum minum þetta fóður, það er slegist um það. :D :P


1199 ISK (kostar 1410 hjá Tjörva)
Image

Notaðu fóður sem er sérhannað fyrir þína dýrategund. JurassiDiet Newt & Aquatic Frog er alvöru matur fyrir salamöndrur og vatnafroska (t.d. afríska klófroskinn). Það er inniheldur eingöngu hágæða fóður og engin næringarlítil uppfyllingar efni eins og t.d. maísmjöl. Fóðrið gefur öll mikilvægustu efnin: Prótein, fitu, kolvetni, vítamín og steinefni og hefur sérstöðu á markaðnum vegna einstaks næringargildis og bragðgæða. Þú átt eftir að taka eftir auknum vexti, betri lyst, litur skerpist og auknum lífskrafti eftir aðeins mánaðarnotkun JurassiDiet.

Tilvalið fóður fyrir Bambino-a, Fire belly newt, klófroska og flest öll froskdýr. :)


Ég er líka til í að skoða skipti! 8)
Post Reply