Piranha uppsettning

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Piranha uppsettning

Post by LucasLogi »

Var að fá nýtt búr í dag og keypti einnig fjóra 5 mánaða fiska. Mig vantar smá aðstoð varðandi uppsettninguna á búrinu. Búrið er 180l. Það er smá lifandi gróður í búrinu samt ekki nóg held ég. Svo setti ég steina sem ég fékk með búrinu og reyndi að gera felustaði fyrir þá.

Núna eru þeir búnir að vera í búrinu í 3 tíma og vilja helst hópa sér saman undir dæluni. Hvað er best að hafa í búrinu? ætla gera þetta sem allra best fyrir þá svo þeim líði vel. :)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Nokkra hella, mikið opið svæði til þess að synda, harðgerður gróður eins og Anubias því piranha eiga það til áð tæta upp gróður.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Re: Piranha uppsettning

Post by LucasLogi »

semsagt hafa mikið af grjóti þarf helst að taka mynd af þessu og setja inn hef ekki nógu mikið vit á þessu
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ekkert endilega mikið af grjóti, settu búrið frekar upp með td grjót/rætur til hliðana eða aftan til í búrinu og hafðu gott sundsvæði fyrir miðju búri og gefðu þar, þá halda fiskarnir sig aftarlega en samt þannig að þú sjáir þá. Veldu plöntur með þykk blöð og stilka því piranha klippa niður gróður þegar þeir elta bráðina. Reyndu eftir fremsta megni að venja þá á rækjur, fiskbita og þurrfóður svo þeir skemmi síður gróður og passaðu vatnsgæði og sparaðu ekki í hreinsibúnað.
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

Takk fyrir fljót svör

Þeir eru allir í einni klessu undir dæluni frekar fyndið að sjá þetta. allavega ágætt að þeim komi vel saman. Gaf þeim þurrfóður fyrir nokkrum klukkutímum en þeir hafa ekkert snert á því fyrir utan að einn fiskurinn fékk sér aðeins.

Ætla að fara í að redda mér fleirri plöntum á morgun og setja þetta allmennilega upp.
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

Var að spá hvort það væri í lagi að setja rót úti búrið hjá þeim?
60l guppy
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

það stendur allavega í svarinu hjá Varg

Ekkert endilega mikið af grjóti, settu búrið frekar upp með td grjót/rætur til hliðana eða aftan til í búrinu og hafðu gott sundsvæði fyrir miðju búri
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

Stórar rætur sem fiskarnir geta auðveldlega hangið undir er flott.
Flotgróður er góður líka
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
User avatar
drepa
Posts: 136
Joined: 16 Feb 2009, 09:46
Location: Hafnarfjörður 220

Post by drepa »

ég var með 500 l pirana búr , mæli ekki með beittu grjóti , ef þeir panica sem þeir gera oft . t.d. þegar ljósinn kvikna þá geta þeir slasast,

auk þess er fínt að hafa doldið góðan straum á þeim , svona river dæmi. fíla það alveg vel.

mæli líka með að þú kýkjir á þessa síðu

http://www.piranha-fury.com/ fullt af sniðugum upplýsingum þarna.
User avatar
Villimaður
Posts: 38
Joined: 15 May 2007, 22:42

Post by Villimaður »

Fyrir píranha þarftu helst 1-2 rætur, fleirri ef þú ert með litlar rætur. Búa til hella svo þeir geti falið sig en þú samt séð þá. Fljótandi gróður til að deyfa birtuna aðeins. Eins mikinn harðgerðan gróður og þú treystir þér til að hafa.

Og svo örruglega 2 dælur eða eina góða stóra tunnudælu, svakalegir sóðar þessir fiskar.
40L Sunglow búr.
1 Óþekktur humar, ca 3cm.
25L Plexy Nanó búr.
1 Procambarus Fallax, ca 10cm.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Það sem er lykilatriði er að hafa þá í "brúnu" vatni u.þ.b koníakslitu.
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Villimaður
Posts: 38
Joined: 15 May 2007, 22:42

Post by Villimaður »

animal wrote:Það sem er lykilatriði er að hafa þá í "brúnu" vatni u.þ.b koníakslitu.
Það er ein af aukaverkunum að hafa rót í búrinu... getur reyndar endað með drullupoll ef þær eru ekki skolaðar nógu vel.
40L Sunglow búr.
1 Óþekktur humar, ca 3cm.
25L Plexy Nanó búr.
1 Procambarus Fallax, ca 10cm.
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

Villimaður wrote:
animal wrote:Það sem er lykilatriði er að hafa þá í "brúnu" vatni u.þ.b koníakslitu.
Það er ein af aukaverkunum að hafa rót í búrinu... getur reyndar endað með drullupoll ef þær eru ekki skolaðar nógu vel.
Er ekki best að sjóða rótinu ég er með eina frekar stóra sem þeir ættu auðveldlega að geta falið sig undir. Er ekki best að sjóða hana áðuren ég set hana í búrið? hef ekki góða reynslu af svona rótum, sauð hana ekki seinast þegar ég sett hana ofaní og búrið var ógeðslegt
60l guppy
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég las einhver staðar hérna á spjallinu að það væri sniðugt að setja (nýjar) rætur í bala/fötu og hafa þær í köldu og brennheitu vatni til skiptis í nokkra daga. Þá eiga þær að sökkva fyrr og svo auðvitað skolast af þeim í leiðinni.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

skelltu henni í uppþvottavélina einu sinni þá er hún good to go :D Mundu bara, enga sápu.
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Re: Piranha uppsettning

Post by LucasLogi »

Ætla skella rótunum í búrið á morgun og passa mig á að þrífa þær vel áður. Redda mér plönum og gera búrið allmennilegt. Það fer ekki vel um þá að vera undir þessari blessuðu dælu. Mér er samt illa við að vera taka þá aftur úr búrinu, neyðist nú samt til þess á meðan ég klára að gera búrið tilbúið. fer það nokkuð vel með þá að vera að færa oft?
60l guppy
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Ég myndi ráðleggja þér að hafa ræturnar í vatnsbaði í nokkra daga áður, og alltaf að skipta um vatn reglulega á henni :). Var með eina stóra rót í 2-3 daga í vatnsbaði og hún er enn að lita 2 mánuðum síðar :S, einnig var ég með litlar rætur sem ég skipti um vatn á á 2 tíma fresti í um 2 daga og þær lita líka nokkrum vikum síðar. Langar mikið að vita hvað þær lita lengi :S, en þær sukku eins og steinar þegar ég setti þær í :P
200L Green terror búr
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Villimaður wrote:
animal wrote:Það sem er lykilatriði er að hafa þá í "brúnu" vatni u.þ.b koníakslitu.
Það er ein af aukaverkunum að hafa rót í búrinu... getur reyndar endað með drullupoll ef þær eru ekki skolaðar nógu vel.
Drullupoll?? gerir náttúrulega vatnskipti eftir þörfum, en svona á vatnið að vera hjá þeim.
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Re: Piranha uppsettning

Post by Andri Pogo »

LucasLogi wrote:Ætla skella rótunum í búrið á morgun og passa mig á að þrífa þær vel áður. Redda mér plönum og gera búrið allmennilegt. Það fer ekki vel um þá að vera undir þessari blessuðu dælu. Mér er samt illa við að vera taka þá aftur úr búrinu, neyðist nú samt til þess á meðan ég klára að gera búrið tilbúið. fer það nokkuð vel með þá að vera að færa oft?
uss þessir piranha eru svo miklar gungur fyrst að ég myndi ekkert vera að ná þeim upp til að vesenast í búrinu.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Re: Piranha uppsettning

Post by LucasLogi »

Andri Pogo wrote:
LucasLogi wrote:Ætla skella rótunum í búrið á morgun og passa mig á að þrífa þær vel áður. Redda mér plönum og gera búrið allmennilegt. Það fer ekki vel um þá að vera undir þessari blessuðu dælu. Mér er samt illa við að vera taka þá aftur úr búrinu, neyðist nú samt til þess á meðan ég klára að gera búrið tilbúið. fer það nokkuð vel með þá að vera að færa oft?
uss þessir piranha eru svo miklar gungur fyrst að ég myndi ekkert vera að ná þeim upp til að vesenast í búrinu.
Held ég geti allveg vesenast í búrinu þótt þeir séu ofaní. þeir fela sig bara á meðan
60l guppy
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Re: Piranha uppsettning

Post by LucasLogi »

Búinn að vera skola rótina í allan dag og skellti henni í uppþvottavélina :D Það er satt hjá þér Andri þessir fiskar eru allgjörar gungur samt svakalega forvitnir. það þarf ekkert að taka þá uppúr. Tók alla steinana úr búrinu og gerði einn helli í annað hornið sem þeir stukku í strax. Allt búrið er autt sundsvæði fyrir þá það finnst þeim ekki leiðinlegt :P
60l guppy
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Re: Piranha uppsettning

Post by LucasLogi »

smá vesen
Last edited by LucasLogi on 06 Apr 2009, 14:32, edited 1 time in total.
60l guppy
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Re: Piranha uppsettning

Post by LucasLogi »

Ákvað að skella inn mynd af búrinu eins og það er núna kannski ekki besta mynd í heimi.

Image

Image

Ætla gera þetta flottara
60l guppy
User avatar
Jaguarinn
Posts: 1141
Joined: 20 Oct 2007, 16:07

Post by Jaguarinn »

ég mindi skifta um möl þanig að hún verði alveg svört og láta svartan bakrun
:)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Til þess að gera rauðalitinn sýnilegri (þó að hann sé vel sýnilegur):
Svört möl
Svartur bakgrunnur
Gefa 2 á dag þurrfóður
Gefa einu sinni á dag eitthvað af þessu:
Rækjur
Blóðormar
Mjölormar
Ýsa
Humar
o.fl. kjötmeti
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Afhverju er búrið ekki fullt af vatni? :?
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

Lindared wrote:Afhverju er búrið ekki fullt af vatni? :?
Skil ekki afhverju ég fyllti það ekki allveg. Það er fullt núna :D
60l guppy
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Muna líka að veiða upp mat sem ekki er borðaður :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Síkliðan wrote:Til þess að gera rauðalitinn sýnilegri (þó að hann sé vel sýnilegur):
Svört möl
Svartur bakgrunnur
Gefa 2 á dag þurrfóður
Gefa einu sinni á dag eitthvað af þessu:
Rækjur
Blóðormar
Mjölormar
Ýsa
Humar
o.fl. kjötmeti
Gefa piranha 3x á dag? Ertu alveg búinn að tapa glórunni vinurinn?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
LucasLogi
Posts: 272
Joined: 25 Mar 2009, 14:40
Location: Njarðvík

Post by LucasLogi »

Hvað gefur maður oft á dag? Þeir éta rækjurnar sem ég set í búrið ekki þurrfóðrið. setti fjórar rækjur í búrið í gær og það er ein eftir.
60l guppy
Post Reply