Page 1 of 1
Nano búr
Posted: 04 Apr 2009, 16:22
by oddi302
Gæti einhver gefið mér upplýsingar um það hvað ég þyrfti ef mig langaði að prófa að starta 10-15L sjávar nanó búri.(kannski max 20L)
Ég veit það að það er ekki auðvelt og ég þarf enga pósta um hvað það er erfitt.
Endilega komið með comment um tækjabúnað sem ég þyrfti í þetta og eins hvernig þið munduð setja þetta upp ef þið munduð prófa þetta.
Er ekki útilokað að vera með fiska í svona litlu búri eða gæti gengið að vera kannski með 1stk af einhverri harðgerðri tegund?
Er reyndar aðallega að hugsa um að vera með liverock og kóralla.
Kv Öddi
Posted: 04 Apr 2009, 17:20
by Squinchy
Lýst vel á þessa tilraun
hlutir sem þú þarft eru:
Hitari
Ljós
Straumdælu kannski í kringum 150-300L/h (Ég er með 2x 300L/h í 18 lítra Nano búri + Aquaclear 50)
Mæli með Aquaclear 50 (Eða AC70) og breyta henni svona
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=3567
3 - 4.kg LS
2 - 3.kg LR
Getur sett 1 fisk í þetta búr, mæli með
Green Chromis Damsel eða Yellowtail blue Damsel
Posted: 06 Apr 2009, 22:49
by oddi302
Smá pælingar í gangi
Væri séns að vera með tunnudælu við þetta setup og ef það væri séns hvað þyrfti hún að vera stór?
Ef það er möguleiki að vera með tunnudælu mundi ég þá ekki sleppa við að vera með powerhead?
Var nefnilega að spá í tunnudælu með innbyggðum hitara
Posted: 06 Apr 2009, 22:51
by keli
það er í góðu lagi.
Posted: 06 Apr 2009, 22:53
by Arnarl
ef þú ert með góða tunnudælu geturu allveg sloppið við að hafa power head
Posted: 06 Apr 2009, 22:55
by oddi302
Hvað yrði þá að vera cirka lágmarksstærð á dælunni fyrir cirka 20L búr?
Hvað er mælt með að sjórinn sé að hringrása mikið á klukkutíma svona lágmark?
Posted: 06 Apr 2009, 22:57
by Arnarl
minnir að það sé sirka 5 sinnum á klukkutíma, fyrir 20 lítra búr er það frekar lítil tunnudæla.
Posted: 07 Apr 2009, 01:46
by ulli
10 falt minimun hef ég heyrt
Posted: 07 Apr 2009, 11:35
by EiríkurArnar
7-10x samkvæmt nano-reef.com fyrir powerhead
tala ekkert um tunnudælu.
Samkvæmt nano-reef.com er eina sem þú þarft LS, LR og powerhead 7-10xbúrstærð.
Þannig settup getur virkað fyrir stærri búr líka.
Posted: 07 Apr 2009, 12:48
by keli
Það er engin föst regla með þetta, fer allt eftir því hvernig flæðinu er dreift og hvernig búrið er innréttað.
Posted: 07 Apr 2009, 20:31
by oddi302
Hvernig er best að leysa ljósastæðumálin ef búrið verður 25x25x25.
Er hægt að fá í einhverjum verslunum complett ljósastæðu sem ég gæti nýtt í þetta eða verð ég að útbúa eitthvað sjálfur, hugmyndin er að hafa þetta opið búr ef það er séns.
Þetta verður að vera nokkuð snyrtilegt þar sem þetta verður smá stofustáss hjá mér og eins má ljósið náttúrulega ekki pirra augun ef maður er að horfa á búrið.
Posted: 07 Apr 2009, 20:42
by Squinchy
Frekar ólíklegt að búðir hafi lok í þessari stærð en þú ættir að prófa þá í
Flúrlömpum þeir geta örugglega sett saman eitthvað töff T5 ljós sem þú getur látið dangla niður úr loftinu yfir búrinu Eitthvað eins og svona
http://shwasa.com/images/aquarium/diy/p ... l_done.jpg
Láta það síðan vera 5 - 10 cm frá vatninu