Page 1 of 3

70L Nanó búr

Posted: 07 Apr 2009, 18:08
by Jakob
Hef verið að hugsa um að breyta 70L búri í Nanó Sjávarbúr. Málin eru L=60cm B=30cm H=35cm.
Ég kann ekkert á sjóinn og hef því nokkrar random spurningar.
Búrið á að vera kóralla búr, og anemónum, kannski 1-2 fiskum síðar meir.

Ég þarf powerhead, hversu marga lítra per hour á hann að ganga?
Hvernig dæla hentar í svona búr (lítið sjávarbúr)?
Ætti ég að hafa yfirfall? Breytti það miklu?
Perurnar í ljósastæðinu sem að er er 45cm, þarf ég bara nýja peru eða þarf ég nýjan ljósabúnað líka?
Hversu mörg kg. af live sand þarf ég?
Hversu mörg kg. af live rock þarf ég?
Og svona með, hvaða kórallar/anemónur eru hentugar í svona byrjunar búr?

Vona að ég fái skjót svör.

Posted: 07 Apr 2009, 18:30
by Squinchy
Lýst vel á þig :góður:

Powerhead ætti að vera í kringum 500 - 700L/h (Eða 2x 300L/h)
Ég mæli með Aquaclear Hang on back dælunum, þær endast endalaust ( á eina 11 ára gamla og virkar enn eins og ný) og hafa gott flæði fyrir refugium
Þarft ekki yfirfall fyrir svona lítið búr frekar en þig langar, gerir þetta bara flóknara
getur byrjað á því að fá þér 10000Kelvin peru í lokið og ef það er pláss til að DIY fitta annari peru seinna meir er það bara plús, hvernig búr er þetta ?
oft talað um 1 pund per gallon sem gerir 8-10.kg af LR, getur byrjað á 3 -5.kg og svo bara bætt við
sandurinn þarf að þekja botninn svona 3 - 4 cm

Einhverjir sveppir, Zoa, Toadstool, einhverja sem þurfa ekki mikið ljósmagn
Anemone myndi ég ekki bæta við fyr en eftir 3 - 5 mánaða keyrslu svo gott jafnvægi sé komið á búrið

Posted: 07 Apr 2009, 18:49
by Jakob
Squinchy wrote:Lýst vel á þig :góður:

Powerhead ætti að vera í kringum 500 - 700L/h (Eða 2x 300L/h)
Ég mæli með Aquaclear Hang on back dælunum, þær endast endalaust ( á eina 11 ára gamla og virkar enn eins og ný) og hafa gott flæði fyrir refugium
Þarft ekki yfirfall fyrir svona lítið búr frekar en þig langar, gerir þetta bara flóknara
getur byrjað á því að fá þér 10000Kelvin peru í lokið og ef það er pláss til að DIY fitta annari peru seinna meir er það bara plús, hvernig búr er þetta ?
oft talað um 1 pund per gallon sem gerir 8-10.kg af LR, getur byrjað á 3 -5.kg og svo bara bætt við
sandurinn þarf að þekja botninn svona 3 - 4 cm

Einhverjir sveppir, Zoa, Toadstool, einhverja sem þurfa ekki mikið ljósmagn
Anemone myndi ég ekki bæta við fyr en eftir 3 - 5 mánaða keyrslu svo gott jafnvægi sé komið á búrið
Hvar fær maður Aquaclear Hang on back dælurnar?
Hvað er refugium?
Ekki nógu mikið pláss fyrir DIY peru, en 10þ kelvin hljómar vel. Búrið er Rena, Lokið og búrið líka er frekar sjúskað en verður að duga, búrið er eld gamalt líka.
Ég byrja þá á 5kg. af Live rock og 8-10kg. af LS ætti að vera fínt myndi ég halda.
Með kóralla o.s.frv. þá hafði ég hugsað út í Hammerhead, Toadstool, sveppi og einmitt Button linkóralla Zoanthus. Fiskar fara í búrið svona 4-6 mánuði eftir störtun.

Þegar ég spyr þessara spurninga hef ég þetta í huga: "Only stupid questions are those not asked".

Út af fjárhagsástæðum kemst ég samt líklega ekki í að starta búrinu fyrr en í sumar.

Posted: 07 Apr 2009, 19:15
by Jakob
Þarf einhverja sérstaka peru fyrir sjávarbúr?
Rakst á peru sem að er 10þ Kelvin og ódýr ( :roll: )
Er þessi í lagi eða á ég að fá hentugri perur hjá Kidda?

http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... ts_id=2861

Posted: 07 Apr 2009, 19:46
by Squinchy
Fisko er með Aquaclear dælurnar
Refugium er Low flow hólf með lýsingu fyrir ofan, er notað undir macro þörung, sá þörungur sér um að borða Nitrat og er gott heimili fyrir Amphipods
Ég gerði t.d. refugium úr minni AC50 http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=3567

Ég mæli með því að setja búrið bara upp fyrst með fiskum til þess að fá bakteríu flóruna í gang og kórallana seinna því kórallarnir eru svo miklu viðkvæmari , 1 - 3 dampsel myndu henta mjög vel til þess að starta búrinu

Getur notað hvaða 10k peru sem er, ef ég man rétt þá er þessi pera ódýrari í dýralíf

Posted: 07 Apr 2009, 19:56
by Jakob
Borgar þetta bölvaða föndur sig með Aquaclear, er ekki bara í lagi að hafa djöfulsins dæluna, aukþess mundi ég örugglega f*kka þessu upp (svona föndur er ekki mín sterkasta hlið :oops: ).

Ok, þá byrja ég á fiskum eins og þú segir, ég hélt að ég ætti að starta búrinu með kóröllunum til að koma flóru fyrir fiskana, en hvað veit maður. :roll:
Kem í heimsókn í Dýralíf eftir mánuð eða tvo, fæ þessa peru hjá þér. Gætiru sent mér verð í ep. þegar þú getur?

Posted: 07 Apr 2009, 20:12
by Jakob
Hvað þarf að vera mikið af salti í búrinu?

Posted: 07 Apr 2009, 20:35
by Squinchy
Neinei þú þarft ekkert að hafa svona dælu, kemst alveg af án hennar

Ég er að setja 350.gr út í sirka 10lítra

Skal senda þér verðið sem fyrst

Posted: 07 Apr 2009, 22:47
by Jakob
Takk fyrir þetta, ég kem með fleiri spurningar ef að mér dettur eitthvað í hug.
Vil þakka Squinchy kærlega fyrir skjót og góð svör.

Posted: 07 Apr 2009, 23:01
by Squinchy
Ekkert mál ;)

Posted: 07 Apr 2009, 23:11
by Jakob
Taka Aquaclear dælurnar mikið pláss?
Búrið er ekki stórt, og ekki mjög breitt svo að það er frekar óhentugt sem sjáfarbúr, but i will give it a shot!

Semsagt ég þarf 600L p/h powerhead.
Mér leist mjög vel á þennan: http://verslun.tjorvar.is/product_info. ... ts_id=1789
Svo kíki ég líka í dýragarðinn að skoða verð á ls og lr á morgun.

Powerhead 600L p/h
Og ég á víst að hafa filterdælu líka, hve marga liter p/h á hún að ganga?

Posted: 07 Apr 2009, 23:19
by Arnarl
ég myndi ekki eyða peningum í þetta powerhead, það eiga að fara koma powerhead frá eheim sem eru ódýrari.
Svo myndi ég taka sand sem er í stóra sýningarbúrinu uppí Dýrgarði og taka 60lítra af sjó þar þá geturu sett fiska í það strax.

Posted: 07 Apr 2009, 23:27
by Jakob
Get ég haft skimmer í staðinn fyrir straumdælu, eða er skimmer möst í sjávarbúr?

Posted: 07 Apr 2009, 23:29
by Arnarl
hann er ekkert möst í svona lítið búr, tekur bara pláss í svona lítið búr.

Posted: 07 Apr 2009, 23:42
by Squinchy
Jesús sjá verðmiðann á þessari dælu, 2000L/h dælan sem ég var að fá mér kostar 4500.kr út úr búð :shock:

AC dælan tekur lítið sem ekkert pláss ofan í búrinu, svo fer stærðin á kassanum eftir týpunni

Hver eru málin á búrinu ?

Þarft ekki að hafa filter dælu en það er gott að geta haft eiginnleikann á því að geta sett hvítan filter svamp í til að fínn pússa vatnið

þarft straumdæluna frekar en skimmerinn en það er til nano skimmer í dýralíf sem gæti hentað þér

Posted: 07 Apr 2009, 23:52
by Jakob
Gæti ég ekki líka bara verið með 2000L p/h úr dýralíf (að sjálfsögðu) og nanó skimmer (líka úr dýralíf) og allt væri í gúddí?
Hvað þarf oft að gera vatnsskipti og hve mikið í einu?
Eru 4 litlir kórallar ekki hentugir í þetta búr?

Posted: 08 Apr 2009, 00:15
by Squinchy
2000L/h myndi gera góðan hvirfilbyl í búrinu :D, hún hreifir við sandinum hjá mér í 125L :P svo er hún líka uppseld en það eru til aðrar dælur sem myndu henta betur og kannski notaðar sem voru að hætta í notkun í dag

Ég skipti út 10% hjá mér á 7 - 10 daga fresti, má líka gera 40-50% á mánaða fresti

Getur haft helling af auðveldum kóröllum í þessu búri

Posted: 08 Apr 2009, 00:25
by Jakob
Núnú, verðuru að vinna á morgun svo að ég geti bara komið og talað við þig?

Posted: 08 Apr 2009, 00:35
by Squinchy
Já er að vinna á morgun :)

Posted: 08 Apr 2009, 00:39
by Jakob
Flotter kem um hálf fimm-fimm.

Posted: 08 Apr 2009, 23:53
by Jakob
Komst ekki í búðina í dag.
Anyway, þarf eitthvað sérstakt salt eða er bara gróft Kötlu salt í lagi?

Posted: 08 Apr 2009, 23:55
by Arnarl
Sérstakt salt, ekki nota kötlusalt :wink:

Posted: 08 Apr 2009, 23:57
by Jakob
Hvað kostar þetta salt svo hjá ykkur niðrí Síðumúla?

Posted: 08 Apr 2009, 23:58
by Arnarl
man ekki uppá krónu en í kringum 3300 kr 2 Kg.

Posted: 09 Apr 2009, 00:00
by drepa
er ekki best bara reyna kick starta búri með vatni frá einhverjum sem er að fara gera vatnaskipti ef þúrt með svona lítið búr , og leyfa því svo að cycla í mánuð, þá er nó tími til að útvega sér salt og svoleiðis.

btw salt er ekki bara salt , það er til matarsalt og svo er til sjávarsalt.

þetta er eins og að drekka rauðvín sem er gert fyrir matargerð (þessi í 2.5 lítrabrúsunum með kryddinu í) og vonast að það smakkist eins og venjulegt rauðvín , sem það gerir ekki piff úuf bjakk

Posted: 09 Apr 2009, 00:18
by Jakob
Iss drepa, það er ekkert að marka þetta, Animal hellir öllu sem að kallast rauðvín ofan í sig. :P

3300kr. fyrir 2kg? Já sæll það er dýrt. Er ekki hægt að taka 20kg. pakka með einhverjum afslætti? (70% í góðærinu :P)

Ég reyni að tala einhvern til þegar að ég er að starta búrinu og fæ þá kannski 30-60L af vatni. :)

Posted: 09 Apr 2009, 01:00
by animal
Síkliðan wrote:Iss drepa, það er ekkert að marka þetta, Animal hellir öllu sem að kallast rauðvín ofan í sig. :P

3300kr. fyrir 2kg? Já sæll það er dýrt. Er ekki hægt að taka 20kg. pakka með einhverjum afslætti? (70% í góðærinu :P)

Ég reyni að tala einhvern til þegar að ég er að starta búrinu og fæ þá kannski 30-60L af vatni. :)
JÁ!! Hvað er verið að bendla mig hér við rauðvínsdrykkju, þó að vissulega dreypi ég á blóði Krists svona endrum og eins.

Gerðu einsog Squinchy ráðleggur þér (hann er greinilega algjör nörd í þessu :lol: ) settu mollý í búrið 3-4 og gefðu því mánuð til að taka sig og safnaðu þér eins miklum fróðleik og þú getur á meðan og taktu svo næsta skref þegar að því kemur og fylgstu vel með öllu sem er að gerast í búrinu. getur prufað að tala við mig upp á sjó.


P.S annars hef ég alltaf verið meira fyrir það sem indíánarnir kölluðu"Crazy Water" :roll: :P

Posted: 09 Apr 2009, 01:09
by Dýragardurinn
Saltið kostar 1990kr 2kg.

Ef þú vilt þá getur fengið gamlan sjó og live sand líka.

Verðið á sjónum er bara hve mikið vatn þú tekur, td. ef þú tækir 60 lítra þá þyrfturu að borga fyrir 2kg af salti.
Live sand kostar sama og nýr sandur, 5kg kóralsandur kostar 3200kr.

Posted: 09 Apr 2009, 01:09
by Jakob
:shock: Þú að drekka, ég hélt þú værir edrú :shock:

Ég sendi bara ykkur sjávar gaurum ep. um salt þegar ég er að starta búrinu.

Posted: 09 Apr 2009, 01:12
by Arnarl
Dýragardurinn wrote:Saltið kostar 1990kr 2kg.
Nokkrar krónur til eða frá :lol: