Varlamannsbúrið

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Varlamannsbúrið

Post by Varlamaður »

Þegar ég kom í vinnuna um hádegi í dag var annar Banded leporinus gaurinn minn dauður og hálf étinn á botninu. :shock:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Komdu nú með smá info um búrið þitt.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Búrið "mitt" er frekar lítið. Eða 120l. Þetta búr er í eigu fyrmanns míns í vinnunni. Ég sá það í geymslu hérna og tók það uppá mína arma og er með það hér inni á rannsóknastofnunni.
Sagan á bakvið búrið er löng og leiðinleg svo ég segi frá síðasta mánuði eða svo.

Ég var með tvo svona. En annar dó núna á dögunum, þeir voru í sérstöku uppáhaldi svo hans er sárt saknað. Þeir heita Banded leporinus Leporinus fasciatus
Image

Ég er með þetta par af Cobalt blue zebra Metriaclima callainos Þau hafa komið upp 7 afkvæmum sem eru flutt út. Núna eru að minnstakosti 4 afkvæmi í viðbót.
Image

Var að losa mig við þennan þar sem hann var svo djöfulli grimmur og var að ganga að öðrum fiskum dauðum
Image

Ég er með 2 Bala hákarla Balantiocheilus melanopterus Því miður á ég ekki betri mynd í augnablikinu en bæti öruglega úr því við tækifæri
Image

Síðan er ég með einhverng Pleco gaur sem ég veit ekki allveg hvað heitir. Kannski að Vargur muni hvað hann lét mig fá :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Var það ekki bara venjulegur brúsknefur.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Það eru Varla fiskar í búrinu.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Ég er kominn með nýtt fiskabúr heim. Ég fékk mér 325 l Aquastabil búr og er með Am-Top 3337 tunndælu. Ég er með "venjulegt" ljós en með Aquastabil perum. Ég fékk bland í poka með búrinu. Nokkra gubby, platty og black molly. Ég tók svo seiði síkliðu seiði úr vinnunni auk ræstitæknisins. Þetta er svona fyrsta skrefið að koma upp fiskum.
Ég er samt ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að hafa í búrinu.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Annar balahákarlinn minn hér í vinnunni stökk upp í glerið áðan og varð ansi vankaður og liggur nú á hvolfi en andar þó. Ég tók hann strax til hliðar því sambýlingar hans voru farnir að narta í hann.
Nú virðist hann vera aðeina að jafna sig en er enn á hvolfi.
Ég tók eftir því að hann er annsi rauður við eyruggana og á tálknbörðunum líkt og það sé blæðing í gangi.
Hvað segið þið gott fólk gæti þetta verið vegna höggsins sem hann fékk eða gæti þetta verið sjúkdómur sem veldur svona blæðingu og höggið hafi bara verið tilviljun?
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Nú er balagaurinn farinn að hresast farinn að snúa rétt en er hálf druslulegur. Ég þarf að passa sérstaklega uppá að hann verði ekki fyrir árás.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ef þér er annt um hann skaltu geyma hann sér ef þú hefur aðstöðu til, annars bara sjá til hvernig fer.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Já ég ætla að sjá hvað ég get gert við hann ræfilinn. Hann er kominn aftur í búrið http://www.simnet.is/unnrey/myndir/fiskar/IMG_2859.JPG þessi gaur lætur hann ekki í friði.
Ég sé líka núna að bala gaurinn er farinn að missa hreistur.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Ég byrjaði að setja balahákarlinn í lítinn bala sem ég rændi á heiðarlegan hátt á næstu rannsóknastofu svona rétt á meðan ég fyndi út úr hvað ég gæti gert við hann ræfilinn.
Ég fékk svo að láni 30 l búr sem er orðið sjúkrabúr hjá mér meðan það kemur í ljós hvernig honum vegnar.

En balahákarlar fíla ekki bala.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Bala hákarlinn í búrinu í vinnunni er orðinn frískur. Ég fékk fyrir hann sjúkrabúr. Sem hann fékk að dúsa í í tvo daga.

Annars veit ég ekki hvern fjandan ég var að veiða uppúr búrinu hér heima áðan. Þetta er kvikindi sem er lítið og flatt. Ég reyndi að taka mynd af þessu en náði því ekki þó ég hafi notað macro stillinguna enda er þetta agnar smátt. Mér dettur í hug að þetta séu svona 3mm. Ég teiknaði mynd af þessu ef einhver þekki þetta og byrtist hún hér að neðan.

Image

Hver fjandin gæti þetta verið?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Jamm, líklega lús.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

og hvað ætti ég að gera?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þetta getur verið snúið að losna alveg við, almennt er best að koma fiskunum í annað búr og reyna svo að myrða kvikindin með eitri eða rótækum aðgerðum, mér dettur í hug klór eða eitthvað sambærilegt.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Var að fíflast með myndavélina mína sem er auðvitað óhæf til myndatöku á fiskabúrum. Verð að geta stillt fókusin manjúalí. Ótrúlegt hvað mér tókst að gera.
Image
Sanity calms, but madness is more interesting.
John Russel

http://www.simnet.is/unnrey
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Ég brá mér frá um jólin og fékk ungan dreng til að fóðra fyrir mig og stóð hann sig rosalega vel. Skreið heim til mín gegnum heljar magn af snjó.

Þegar heim var komið sá ég að annar albínóinn minn var horfinn hefur hann sennilega verið ágætis ábót.

Dælan mín gaf upp öndina líka og ég hef ekki komið henni í gang aftur. Ég kaupi mér eflaust nýja í dag.

Þegar ég var að hreinsa dæluna mína fann ég 9 seiði. Þrjú þeirra voru greinilega Cobalt blue Zebra en hin er ég ekki allveg viss um hvað er. Dettur helst í hug Red Zebra. Það eru reyndar 4 þeirra horfin í dag en ég er nú búinn að útbúa smá seiðabox í búrið mitt og hafa þau það mjög gott þar að eigin sögn.
Sanity calms, but madness is more interesting.
John Russel

http://www.simnet.is/unnrey
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Kannski maður fari að skoða betur ofan í dælurnar hjá sér!
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

gætu verið yellow lab sem þú ert með í búrinu.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Síkliðan wrote:gætu verið yellow lab sem þú ert með í búrinu.
Já já gæti verið.

Þeir sem koma til greina eru Red zebra, Yellow lab og svo albínóagaur, maður sér það betur þegar þeir fara að stækka smá.
Sanity calms, but madness is more interesting.
John Russel

http://www.simnet.is/unnrey
Post Reply