Hvaða tunnudælu mæli þið með núna?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Kaladar
Posts: 63
Joined: 06 Apr 2009, 00:04

Hvaða tunnudælu mæli þið með núna?

Post by Kaladar »

Vantar orðið betri dælu í 400lítra búrið þar sem fiskarnir eru búnir að stækka helling og eru algjörir sóðar.

Hvaða dælu mæli þið með að maður fái sér fyrir utan eheim sem er kjánalega dýr hér?

Það sem ég er með í búrinu núna eru:
3x Polypterusar (16-23cm)
2x Oscar (10cm)
1x Green Terror (13cm)
1x Firemouth Ellioti (10cm)
1x Geophagus Brasiliensis (6cm)
2x Leporinus Arcus
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Rena XP4
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Squinchy wrote:Rena XP4
Rena XP4 er definetly málið!
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

hvað er xp4 að kosta vs t.d. eheim 2028?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er harður á því að Rena tunnudælurnar eru bestu kaupin miðað við verð og gæði, Þær endast vel og það heyrir nánast til undantekninga að þær bili og ef það gerist þá eru varahlutirnir mjög ódýrir.
Xp 4 er klárlega málið.
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=3006
Beisó
Posts: 35
Joined: 25 Jan 2008, 23:00

Post by Beisó »

er með rena xp 4
er mjög sáttur við hana hefur ekkert bilað og mjög hlóðlát
svo skemmir ekki verðið 36þ í stað 90þ á sambærilegri
kv
beisó
User avatar
Kaladar
Posts: 63
Joined: 06 Apr 2009, 00:04

Post by Kaladar »

Flott, takk fyrir svörin. Heyrði í Vargi áðan, tek eina hjá honum á morgun 8)

Fannst hinsvegar Tetra Ex 2400 spennandi líka en hún er ekki til á landinu :P
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

EX 2400 kemur örugglega með næstu sendingu í dýralíf, er að spá í að setja 1 þannig á 600 lítrana mína
Kv. Jökull
Dyralif.is
Eyjó
Posts: 298
Joined: 26 Mar 2007, 16:12
Location: Reykjavik

Post by Eyjó »

Besti filter sem ég hef haft er þrýstifilter fyrir tjarnir. Ég var með var með Filtoclear 3000 frá gosbrunnum.is og Oase Neptun dælu sem hafa reynst mér mjög vel í fiskastússinu
Saman kostar settið 45þ í dag (sjitt hvað þetta er búið að hækka síðan ég keypti þetta)

http://gosbrunnar.is/Gosbrunnavorur-þrystifilterar.html
http://gosbrunnar.is/Daelur-styttu.html
Post Reply