ég var á fiskabúða brölti í gær og spurðist fyrir um gibba í einni búð og það var til nokkrir gibbar á bakvið og tveir af þeim villtust með í sendinguna og eru semsagt ekki þessi hefðbundni gibbi svo ég spurði hvað þessi tegund héti en það vissi það enginn í búðinni og þetta eru menn með áratuga reynslu í fiskum hef ég heyrt svo ég skellti mér bara á þá og tók mynd af öðrum þeirra til að pósta hér, ef einhver skyldi luma á upplýsingum um þessa týpu
p.s. allar ágiskanir eru vel þegnar líka svo maður geti rannsakað það nánar á netinu... því ég finn ekkert um hann eins og er...
Ég var með nafnið í bók en ekki L númerið og frekar lélaga mynd þannig ég leitaði á netinu eftir nafni, ég held ég hafi þurft 4 tilraunir áður en ég gat skrifað það rétt. Mér finnst að allir fiskar ættu að hafa bara númer.
ég leitaði á google eftir catfish fékk ekki nema rétt rúmlega 8 milljón niðurstöður og reyndi svo að skoða fullt af síðum ... en þegar maður er nýr í þessu hobbýi þá veit maður ekki hvað snýr upp né niður í þessu