54L búr í Barnaherbergi
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
54L búr í Barnaherbergi
Jæja
Fyrsta mynd af búrinu sem ég er að möndla saman fyrir strákinn minn. Juwel Rekord 60. Setti vatn í það á þriðjudag. Er með stóran (m.v. búrið) L-laga hraunmola í vinstra horninu, brotnum blómapotti í miðjunni, lítið grjót sem er með hvítum blettum hægra megin, og svarta möl sem ætluð er í hellugerð.
Á eftir að setja einhvern harðgerðan gróður í þetta búr. Nenni ekki að setja rót í búrið, nenni ekki gulu vatni.
Enn ekki alveg klár á því hvað fer í búrið. Hallast að pari af M. Ramirezi, nokkrum rummy nose tetrum, og pari af gull- eða albínó ankistrum. Svo kannski stykki bardagakall.

Jæja. Fór að skoða Fiðrildasíklíðurnar í LFS. Voru svo flott eintök að ég sprakk á limminu og keypti það sem ég tel vera kall og kellingu.
Tók EHFIsubstrat kúlur úr 250L búrinu og setti ofan á ullina á Juwel filternum til að tryggja að það væri allavega einhver flóra í búrinu. En ég veit að þetta var spontant og kjánalegt
Smellti af myndum í flýti:
Óskýr mynd af kallinum að spenna
Kallinn fyrir framan blómapottinn
Kellingin
Þeir eru svaka hressir enn sem komið er. Hálfgerður dans í þeim, uggarnir á svaka motion og miklir litir. Hef ekki séð þær éta ennþá. Gaf þeim bara einhver 3 korn af Tetra Prima.

Hvort ertu með þurra eða frosna blóðorma?
Annars borða þau alveg Prima. Þau þurfa bara að hafa svolítið fyrir þessu, ráðast á matinn og brjóta hann, synda með hann á fullu og svona.
Neonarnir í 250L búrinu gera þetta sama, bíta í og reyna að hrista hann í sundur. Ég gef bara Prima og nautshjarta í 250L. Reyndi einhverntíman að vera með flögur, en það leit enginn við því.

Verður 5 ára í haust
Ég er nokkuð sáttur við búrið. Hraunmolinn er holur við hornið þannig að það myndast hellir þar. Kallinn rak kerlinguna þangað um daginn og það virtist ekkert væsa um hana.
Tók steininn hægra megin og setti flatan stein í staðinn, svona spes fyrir þau ef þau skyldu vilja hrygna.
Verst það eru ekki til nema ræfilslegar plöntur fullar af þörung hérna í lókalnum. Tættur Anubias á rúman 4000 kall og svona gleði.. Þannig að það er ekkert komið af plöntum í búrið.

Það er helvítis ra**gat að fá ekki nema draslplöntur.
Ég held það sé alveg skaðlaust þó ég segi þér að það er nýkomin plöntusending í Dýragarðinn, mikið af fallegum en ég veit ekki með prísana. Þeir myndu senda þér fyrir 1/2 orð.

You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Einmitt fínar, stórar anubias til hjá þeim á eitthvað um 2000kall. Ég fékk mér einmitt nokkrar
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Jæja, fékk plöntur úr borg óttans.
Kominn javamosi, anubias (ein stór, og svo ein mjög lítil sem slæddist með), smá offshoot af vallisneria, offshoot af echinodorus bleheri, og smá af egeria densa.
Aðrir íbúar eru par af óskírðum fiðrildasíklíðum og einn eplasnigill sem hefur hlotið nafnið Snilli snigill.
Nýjar myndir:

auðvitað einokun! ég hef keypt plöntur í dýraríkinu í hafnafirði og ef þær eru druslulegar þá hef ég fengið 2 fyrir 1. (plöntur sem ég hef ekki fengið annarsstaðar) það er enn til mikið af sendingunni sem dýragarðurinn fékk og lítur mjög vel út, ef þú þekkir einhvern í bænum sem er í fiskabransanum fáðu hann til að fara þangað, verslaðu í gegnum símann og láttu þá senda þér. tekur 1 til 2 daga og er ekkert mál fyrir plönturnar.mohawk_8 wrote:mér finnst fáránlegt hvað plönturnar í Dýraríkinu á Akureyri er ógeðslegar :/ og svo kostar þetta allt morðfjár...einokun??
sjást engir fiskar á myndinum?? Stressaðir eftir vatnsskiptin eða ertu búin að taka fiðrildasíklíðurnar upp úr?
Er kallinn alveg að láta kerlinguna vera? Ekkert bögg í gangi? Hef alltaf lent í veseni með að hafa 1kk og 1kvk saman í búri. Er með í búrinu mínu tvo kk og þeir fíla sig mjög vel saman.
Þetta á eftir að verða ágætasta búr hjá þér. Hvenær koma svo rummyarnir í hús?

Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Nei þetta voru bara 40% skipti. Bara kemur svo mikið af lofti úr garðslöngunni, verður alveg skýjað í smá tíma. Skipti samt yfirleitt um 20% í viku og nota fötu, en það er vesen af því að vatnsyfirborðið fer niðurundir intakeið á dælunni og powerheadinn fer að snúast þurr, þannig að ég prófaði núna að nota tvær garðslöngur, eina til að siphona vatnið úr og hina til að bæta í, en þetta er bara svo lítið búr að það er erfitt að stjórna þessu, tekur svona 4 mínútur að skipta um vatn
Fiðrildin eru þarna, en eitthvað stress þannig að ég náði ekki góðri mynd. Þetta er skársta:
Kallinn rekur kellinguna stundum í hellinn sem hraunið myndar í horninu, annars eru lítið bögg. Rummyarnir koma þegar þeir eru fáanlegir, voru ekki til þegar ég ætlaði að panta síðast.

Reyndi að ná betri myndum af fiðrildunum. En þau eru eitthvað dán, hanga mikið aftarlega í búrinu og svona. Eitthvað aðeins styst lengdin á broddunum á uggunum á kallinum, voru orðnir helvíti virðulegir.
Veit ekki alveg hvað er að, en ég er að prófa gamla góða salt trixið athuga hvort það lagi stressið.
Kellingin
Kallinn
Svolítið grófar myndir, þar sem ég fékk þá ekki til að koma framar í búrið.