íslenskar rætur

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
malawi feðgar
Posts: 771
Joined: 13 Feb 2008, 11:21
Location: Rvk
Contact:

íslenskar rætur

Post by malawi feðgar »

er í lagi að nota rætur af íslenskum trjám í fiskabúr og ef svo er af hvaða trjám ætti maður að skoða frekar en annað.
600L malawibúr, 325L gróðurbúr, 85L gróðurbúr.

kveðja.
Pétur og Guðni.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

ég hef notað það sem ég hef fundið og ekki lent í neinu
ég veit ekki hvaða tegundir þetta hafa verið
eina sem hefur verið að gerast að mér finnst sem þær eyðast hraðar en þær erlendu

hér er ein
Image
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Sven
Posts: 1106
Joined: 20 May 2007, 09:21

Post by Sven »

eru erlendu ræturnar ekki yfirleitt harðviður sem er búinn að vera dauður í langann tíma. Ef þú finnur einhverjar íslenskar rætur þá væri örugglega best að notast við hægvaxta tré, helst sem væru búin að vera dauð í einhvern tíma. Eða allavega að sjóða ræturnar vel og lengi til að drepa allt líf í þeim.
Ef þú ferð í að gera þetta máttu endilega leyfa okkur að fylgjast með.
Post Reply