Veikur fiskur

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Veikur fiskur

Post by Gunnsa »

Ein af guppy kellunum mæinum lítur út fyrir að vera eitthvað veik, það vantar hreistur á bakið á henni og hún er öll útí einhverju hvítu (sem lítur út eins og feiti) á uggunum.. Getur einhver sagt mér hvað er að henni? Og hvernig losna ég við þetta?

Líka, búrið mitt er allt í brúnum þörungum, það er eins og einhver sé að dunda sér við að hella brúnni málningu í búrið! Þetta er búið að dreifa úr sér nokkuð hratt núna undanfarið. Ég gef fiskunum ekki mikið að borða en er afturámóti með ljósið kveikt nánast allan daginn.
User avatar
Hrannar E.
Posts: 98
Joined: 18 Jan 2007, 06:27
Location: Grindavík

Post by Hrannar E. »

Þetta er hvítblettaveiki það er til if við því í öllum dýrabúðum. Og hitt er sennilega brúnþörungur held að það sé bara best að mika ljósatíman smá.
Kveðja Hrannar
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Hvað gerir maður við þessari hvítblettaveiki? Akkurat núna er bar þessi kella með þetta, er líklegt að hinir fái þetta líka?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta hljómar frekar eins og eitthvað fungus vesen... hvítblettaveiki er þegar það eru hvítir blettir á fiskunum, ca jafn stórir og saltkorn útum allt.

Mikill munur og mismunandi lyf sem höndla þetta

Fínt ef þú getur tekið mynd af þessu.


Hvort sem þetta er, þá borgar sig að skipta um amk 50% af vatninu, þetta er oft útaf lélegum vatnsgæðum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Ég skipti um 20% af vatninu í gær, og ég sá þetta í morgun.. Ég er búin að reyna að taka mynd en ég á bara ekki nógu góða vél til að ná close uppi af þessu
User avatar
Hrannar E.
Posts: 98
Joined: 18 Jan 2007, 06:27
Location: Grindavík

Post by Hrannar E. »

Image
Lýtur þetta svona út á fisknum?
Kveðja Hrannar
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Nei.. bara svone eins og rifin á bakinu og svo þar sem uggarnir mæta búknur eru stórir hvítir blettir, ekkert á líkamanum samt
User avatar
Hrannar E.
Posts: 98
Joined: 18 Jan 2007, 06:27
Location: Grindavík

Post by Hrannar E. »

Veit ekki hvað þetta er :?
Kveðja Hrannar
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Ég var að pæla í að skella henni bara í krukku og fara með hana útí einhverja dýrabúð og sjá hvað einhver segir þar, er það ekki alveg hægt?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Í Gustavberginn með hana bara, ég hef fengið þennan óþverra í guppy og þeim er ekki bjargað enda ástæðulaust að púkka upp á einn veikan fisk og hætta á að smita hina og enn minni ástæða að eyða í lyf sem kostar meira en fiskurinn.
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

ég hef fengið þennan óþverra í guppy
Hvaða óþverri er það? Annars er hún í einangrun akkurat núna.. Ef hún lagast, á ég þá bara að henda henni aftur í búrið?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Óþverrinn lýsir sér eins og það sem þú talar um og er sennilega costia á lokastigi, Þetta hefur nánast alltaf dregið guppy til dauða hjá mér, þeir sem lifa verða aldrei annað en krYpplingar eftir lyfjameðferðina.
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Ég sá smá svona stóra skellu á platy kallinum mínum en það hvarf bara og ekkert vesen. Þau eru bæði búin að vera voða hress, hreyfa sig mikið og hafa eðlilega matarlyst, ekkert óeðlilegt við þau..
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Þarf ekki að pæla í guppy kellunni meira, hún ákvað bara að stökkva uppúr einangruninni í nótt..
Post Reply