Hæhæ
Ég er frekar ný í fiskamálum og vantar aðstoð frá ykkur reyndu. Ég er með 125l búr sem var sett upp í júní. Búrið hefur verið rosalega fallegt þangað til fyrir svona 3 vikum þá varð vatnið allt í einu grænleitt sem eykst bara og eykst
Ég er búin að myrkva búrið algjörlega í 4 sólarhringa, gefa þeim sáralítið að éta og gera mörgum sinnum vatnaskipti en þetta verður strax aftur grænleitt T.d sést varla í bakgrunninn núna, þetta er eins og grænleit þoka.
Endilega gefið mér ráð mig langar svo að ná búrinu flottu aftur.
Takk takk
Grænt vatn :(
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Þú þarft að finna orsökina fyrir þessu. Grænt vatn stafar af of miklu ljósi og of miklu af næringarefnum í vatninu. Þetta er reyndar alveg ágæt lífvera, því hún nærist á einhverju sem myndi annars skaða fiskana þína, en þörungurinn sem slíkur hefur engin slæm áhrif á fiskana. Þetta er bara útlitslegt vandamál. Getur verið vesen að losna við þetta því þörungurinn getur skipt um efni sem hann nærist á, og er mjög harðgerður.
Staðsetning búrsins gæti valdið þessu, ef sólarljós nær að skína á búrið. Gætir þurft að færa búrið eða setja myrkvagardínur fyrir glugga. Of mikil fóðurgjöf er líklegasta orsökin. Eða gróðurnæring í röngum hlutföllum eða of miklu magni. Athugaðu líka hve lengi er kveikt á ljósum í búrinu, ágætt að hafa kveikt í 8-9klst, ekki lengur.
Til að losna við þetta þarftu að framkvæma stór vatnsskipti, myrkva því næst búrið gjörsamlega og halda því myrkvuðu í 4 sólarhringa. Ég nota t.d. ruslapokarúllu og klæði búrið allan hringinn og festi með límbandi. Meðan á myrkvun stendur á ekkert að gefa. Alls ekkert. Að því loknu framkvæma stór vatnsskipti, hreinsa möl og skipta um filterull í dælunni þar sem hún er líklegast orðin ógeðsleg af dauðum þörungi.
Ef aðstæður eru réttar þá ættu vikuleg vatnsskipti að halda búrinu góðu.
Til að vera viss um að gefa ekki of mikinn mat væri sniðugt að helminga það sem þú gefur venjulega og gefa bara einusinni á dag. Yfirleitt gefur fólk fiskum alltof mikinn mat, og þeir komast af með mun minna en maður myndi ætla. Góð regla er að fiskarnir klári allan matinn á 2 mínutum og það verði ekkert eftir.

Takk fyrir þetta flotta svar Ég ætla að prófa að myrkva eftir þessum leiðibeiningum. Þegar ég er búin að myrkva í 4 sólarhringa þarf ég þá að taka mölina alveg uppúr eða er nóg að "ryksuga" hana ? Er nóg að þrífa dælufylterinn eða þarf ég að kaupa nýjan ? Og að lokum.. stór vatnskipti eru um 70% eða hvað ?
Takk aftur
Takk aftur
------------------
54l
54l