Hvernig get ég séð að tími er kominn á að setja kellurnar í gotbúrið?
Eru einhverjar skýrar vísbendingar?
Sverðdragagot
Stundum er gott að leita að eldri greinum
Hvernig sér maður hvort gotfiskahrygna er að fara að gjóta ? Nokkur atriði er vert að hafa í huga. Hrygnurnar verða bústnari og þegar got er að hefjast verður kviðurinn oft sléttur að neðan og myndar eins og 90° horn við gotraufina. Við sjáum oft dökkan blett aftarlega á kviðnum, sem sést ekki á svörtum gotfiskum eins og Black molly og svörtum sverdrögurum. Hrygnurnar reyna oft að draga sig afsíðis og finna sér næði. Oft lýsir það sér þannig að það er eins og þær reyni að komast út úr búrinu. Hængar elta þessar hrygnur oft meira heldur en aðrar sem getur verið merki um að got er að hefjast. Þegar got er yfirstaðið er hyggilegt að skrá niður dagsetningu ef fólk er spennt fyrir því og taka hrygnuna frá eftir 23 til 24 daga ef vilji er til að ná næsta goti. Meðgöngutími er breytilegur og getur verið frá 3 til 4 vikum og upp í 6 vikur. Hiti skiptir þar máli og svo virðast hrygnurnar geta seinkað goti ef aðstæður eru ekki ákjósanlegar. Lítil plast gotbúr eru algerlega óviðunandi fyrir sverðdragarahrygnur. Plastfötuaðferðin er ágæt til síns brúks, tveir lítrar í 10 l. fötu duga, annars er hætta á að þær stökkvi uppúr. Ekki viljum við það. Það er ekki verra til öryggis að setja eitthvað yfir fötuna og slatta af javamosa eða litlum flötum steinum til skjóls fyrir seiðin. Myrkur er betra en birta. Skýrir sig sjálft. Fötuna á að staðsetja ofarlega í skáp, þar sem hitinn er mestur, ekki niður við gólf. Notaðu síðan bestu fiskana til undaneldis og árangurinn lætur ekki á sér standa. Gangi þér vel og mundu að þolinmæði er dyggð.
nei það kemur engin tota, það á bara við um þær hrygnur sem hrygna, þá er það vísbending að þær eru tilbúnar til hrygningar.barri wrote:Já ok er betra að setja upp búr fyrir þær og þá með Javamosa eða einhverju svoleiðis fyrir seyðin eða net sem þau færu niður um en kellurnar komast ekki í gegn? En með vísbendingarnar kemur engin svona tota eða svoleiðis á þær þegar nálgast?
Sverðdragarar gjóta lifandi afkvæmum.
Mæli með 10L fötu aðferðinni, slatta af java mosa eða öðrum gróðri sem má henda í fötuna og hafa myrkur. Gefa engan mat, meðan hún er í fötunni.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
--------------------------------
1x125L og 1x350L