allt nýtt

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

allt nýtt

Post by anitarikka »

sælir! ég er algjör nýgræðingur í öllu þessu, hef alltaf elskað fiska, fékk mér stóra kúlu og einn lítinn sætann gullfisk.
en ég var að spá hvort það ætti að vera svona furðulega skrítin lykt af búrinu & vatninu?

eitt í viðbót; geta litlar ryksugur lifað í kúlu ?
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ertu búin að skipta eitthvað um vatn?

og ertu að tala um ancistru? ancistrur verða um 15 cm.
Og nei.. myndi ekki mæla með ancistru í kúlubúr.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

Post by anitarikka »

Lindared wrote:ertu búin að skipta eitthvað um vatn?

og ertu að tala um ancistru? ancistrur verða um 15 cm.
Og nei.. myndi ekki mæla með ancistru í kúlubúr.
ég er ekkert búin að skypta um vatn nema ég tek 1-3 bolla af gamla vatninu úr og set 1-3 bolla a nýju vatni í, sama og sölukonan sagði mér :)

já ég sá þessa í fiskabúrinu, augljóslega bara ungi, var bara eitthvað um 5cm, en eru einhverjar ryksugur sem henta vel í kúlubúr ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Nei, engar ryksugur sem henta í kúlubúr.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

Post by anitarikka »

ok, takk fyrir svarið, sem betur fer keypti ég mér ekki eina áðan :)

en hvað með vatnið? það er eitthvað svo fúl lykt af því, og frekar gulleitt eftir 1 dag, er það eðlilegt?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

gæti verið að þú sért að gefa of mikið og óétinn matur sé að rotna á botninum? vatnsgæðin eru fljót að versna við það.
-Andri
695-4495

Image
Dýragardurinn
Posts: 143
Joined: 11 Dec 2006, 16:29
Location: Dýragarðurinn

Post by Dýragardurinn »

Skiptu um vatn alla vega helming, ástæðan fyrir því að kúlan er orðinn drulllug og farin að lykta er að þú ert að gefa of mikið. Minnkaðu matargjöfina um helming. Ef kúlan verður aftur drullug á nokkrum dögum minkkaðu þá aftur matinn um helming.
Dýragarðurinn
Síðumúla 10
108 Reykjavík
S:517-6525
dyragardurinn@dyragardurinn.is
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

plús það að 1-3 bollar í vatnsskipti er ekki neitt, nema þú sért með fiskinn í blómavasa :?

fúlt vatn þýðir að eitthvað sé að, t.d of mikil matargjöf eins og dýragaðurinn nefnir sem þýðir að maturinn byrjar að eyðileggjast og rotna sem hefur þau áhrif að eiturefni safnast upp = vond lykt af vatninu, sennilega ammonia lykt.

veistu hvað kúlan er stór í lítrum talið? Skiptu allavega um 5 lítra á dag, ekki minna, 1 bolli er mesta lagi 250ml, allt of lítið að skipta bara um það. Fiskurinn drepst bara á endanum.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

Post by anitarikka »

ég skypti um allt vatn í morgun, og er ekki búin að gefa honum neitt, og enginn gamall matur á botinunum, samt er vatnið orðið gulleitt aftur !
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ertu með rót (skraut) í búrinu?
-Andri
695-4495

Image
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

Post by anitarikka »

Andri Pogo wrote:ertu með rót (skraut) í búrinu?
ég held að ég sé búin að fatta þetta, ég tók allt saman úr búrinu, var með eina litla gerfiplöntu, plastskip og tréklump/rekavið, þegar ég þreif spítuna með miklum krafti í sturtubotninum spíttist hellingur af jukki úr henni, ég held að spítan var að gera kúlúna ógeðslega, ég prófaði að taka hana úr kúluni og sjá hvort þetta sé ekki hún ;)

takk samt æðislega fyrir hjálpina :D

en eitt enn sem ég er búin að taka eftir, ég gef fiskinum litlar kúlur í matinn, hann setur þær uppí sig og spítur þeim alltaf úr sér aftur, ætli þær séu of stórar fyrir hann ? ætti ég að fá svona flögur í staðinn ? ég gef honum þessar kúlur :)



edit; fiskabúrið er um 10lítrar
Last edited by anitarikka on 07 Oct 2009, 16:27, edited 1 time in total.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þessar kúlur gætu verið í stærra lagi, spurning um að skella sér í gæludýraverslun og kaupa flögur.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Steini
Posts: 237
Joined: 21 Nov 2007, 16:40
Location: Sauðárkrókur

Post by Steini »

anitarikka wrote:ég skypti um allt vatn í morgun, og er ekki búin að gefa honum neitt, og enginn gamall matur á botinunum, samt er vatnið orðið gulleitt aftur !
aldrei skipta um allt vatnið í fiskabúrum, þú tekur þá alla góðu bakteríuflóruna með vatninu.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Spýtan/rekaviðurinn, oftast kallað rót getur líka gefið frá sér lit og gert vatnið gulleitt.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Post Reply