Wött á líter
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Wött á líter
Er með saltvatn og það eina sem þarf svaka ljós er anemonian ( held þetta sé rétta nafnið annars bara nemo heimilið ) og er að pæla hvað er svona algengasta wattamagnið á coralla. Á eftir að kaupa mér fleiri með tímanum en vill hafa næganlega lýsingu. Er í augnablikinu bara með annað lokið fyrir aftanbúrið. Ættuð að fara að sjá það fljótlega ætla að gera flottan þráð með myndum
Þakka öll svör og hjálp fyrirfram
Þakka öll svör og hjálp fyrirfram
Þetta er ekki alveg svo einfalt. T.d. er mjög auðvelt að vera með of mikla lýsingu fyrir suma kóralla sem er fín fyrir aðra, og svo öfugt. Watt per líter gengur ekki upp heldur útaf því að það eru til svo margar tegundir af lýsingu, t.d. t8, t5, metal halide, power compact, led osfrv. T.d. Myndu t8 aldrei duga fyrir neina ljóselskandi kóralla, sama hvað maður myndi troða mörgum perum fyrir ofan búrið. Einnig fer þetta mikið eftir peruvali.
Þú verður að vera aðeins búinn að gera þér hugmynd um hvaða kóralla þú vilt vera með áður en þú spyrð út í lýsingu. Eða bara taka stökkið og kaupa einhverja lýsingu, t.d. t5 og haga svo bara kórallavali eftir því.

Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Rétt eins og Keli segir, W per liter segir nánast ekkert í salt vatninu, væri flott að fá stærð búrsins líka
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Okei ég mæli með T5 fyrir 54L búr, ég er með 2x24W í mínu 54L og ætla að uppfæra í 4x24W til að fá betri litadreifingu
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
LEDs eru líka snilld - hár startkostnaður en þá geturðu verið með allt í búrinu (hægt að dimma þau) og þarft ekki að skipta um perur nema á 5-10 ára fresti.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Nei þarft sérstakar 3W díóður, íhlutir hafa ekki góðar 3Watta, getur pantað svona díóður í gegnum netið erlendis
Kv. Jökull
Dyralif.is
Dyralif.is
Þú vilt 3w cree díóður, cool white og royal blue. Kosta um $6 stykkið og þú þyrftir uþb 24stk. (12 af hvoru)
Ég er með svona yfir 30 lítra búri hjá mér og sé ekki eftir því. Stórskemmtileg birta af þessu og sniðugt í alla staði.
Ég er með svona yfir 30 lítra búri hjá mér og sé ekki eftir því. Stórskemmtileg birta af þessu og sniðugt í alla staði.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
hvað eru þetta mörg volt? Er með spennubreyti sem er 15v - 5a jafnstraumur sem væri 75w. Ef þetta gengur þá er það 25 sem ég myndi hafa. Og með þetta cool og royal ertu ekki aðalega að pæla í 5000-10000k þar sem það eru til fleiri fyrirtæki með þetta en ekki endilage nafnið cool white.
http://www.amazon.com/WHITE-LED-Aquariu ... 271&sr=8-4
en hvað um eitthvað svona. Er þetta gott?
http://www.amazon.com/WHITE-LED-Aquariu ... 271&sr=8-4
en hvað um eitthvað svona. Er þetta gott?
Þetta ljós á amazon er ónothæft fyrir kóralla.rabbi1991 wrote:hvað eru þetta mörg volt? Er með spennubreyti sem er 15v - 5a jafnstraumur sem væri 75w. Ef þetta gengur þá er það 25 sem ég myndi hafa. Og með þetta cool og royal ertu ekki aðalega að pæla í 5000-10000k þar sem það eru til fleiri fyrirtæki með þetta en ekki endilage nafnið cool white.
http://www.amazon.com/WHITE-LED-Aquariu ... 271&sr=8-4
en hvað um eitthvað svona. Er þetta gott?
Cool white eru uþb 6500k og svo eru bláu uþb 20.000k. Ef maður blandar þeim 50/50 þá fær maður ca 12.000k lýsingu.
Hver díóða er um 3.6 volt. Þegar maður er með 3w díóður þá verður maður að vera með einhverskonar driver, t.d. buckpuck, meanwell eða einhvern annan constant current driver. Viðnám duga ekki.
Ég á reyndar drivera sem höndla 13 díóður hvor sem ég gæti selt þér á uþb 10þús/stk. Svo gætirðu keypt díóðurnar t.d. á ledsupply.com.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net