Allt að gerast
endilega í hvert skifti sem koma seiði láta vita
gæti orðið skemmtilegur þráður
einnig ef þið eigið myndir af foreldrum eða sömu tegund ( hvort sem þær eru góðar eða ekki )
setjið þær inn, það eru margir sem skoða spjallið sem þekkja ekki tegundirnar
ekki koma með eitthvað sem gæti gerst eða gerðist í fyrra
höfum bara það sem gerist núna
Agnes Helga wrote:Já, væri til í að koma með myndir af gúbbíunum.. en þeir eru bara svo fjandi erfiðir og vilja ekki vera kyrrir á meðan maður tekur mynd..
Já, ef ég nota flass með vélinni minni verða myndirnar bara leiðinlegar og endurkast af glerinu. Það er samt góð lýsing í búrinu, verð að æfa mig örugglega bara betur
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Skalarnir mínir voru að hrygna aftur um daginn. Seldi annan karlinn og setti svo hinn með kerlunni sem var búin að hrygna og þá tók hann bara við með að hjálpa henni með seiðin.
Eru núna að dunda sér við það að færa þau og svona. Veit ekki hvort að það verði nokkuð úr þessu marmaragibbinn kemst örugglega í þetta á endanum.
p.s. var sem sagt með tvö pör og varð að selja annað.
ég er nú búinn að vera í bransanum lengi og hef aldrei séð hrygningu hjá mér en svo leit ég í ´500 lítra búrið mitt sem konan var að dunda sér mikið með og þá sé ég fyrstu hrygninguna mína, reyndar bara convikt en alltaf gaman að sjá það. mamman er sirka 3 cm samt.
OK, fyrst þú biður um að fá að fylgjas með ræktun þá þýðir ekkert að kvarta yfir myndgæðum!
En uppskeran úr svartneon (Hyphessobrycon herbertaxelrodi) hrygningunni var svosem ekki mikil, 4 seiði komust á legg, lélegt tímakaup þar en mjög lærdómsrík reynsla, ég stefni að því að ná allavega tvöfalt fleiri seiðum á legg úr næstu hrygningu sem ég stefni að því að verði seinni partinn í janúar.
jæja, corydoras seiðin eru búin að klekjast út (6.jan. ca.) og öll enn á lífi.
setti nýja cory kerlingu í hrygningarbúrið (7 jan.) og hún hryngdi 2 dögum seinna (9.jan)
þannig að nýjasta hollið klekst út þá á morgun.
fékk líka eitthvað af platy og molly seiðum.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Svo er allt orðið vitlaust hjá red cherry rækjunum mínum. Komnir líklega um 40 litlir rækjuungar (mögulega fleirri). Og fullt af kerlum fullar af hrognum. Rækjurnar dökkrauðar og í fullu fjöri.
Slatti af mollý og gubbý. Náði í gærkvöldi 20+ undan Aulanocöru sem ég á og var að sjá núna að Taterurndina Ocellicauda er með seiði hjá mér, ætla að reyna að ná þeim en er ekki of bjartsýnn á það. þarf að fara að smíða rekka þetta gengur ekki lengur!!
Já og svo sé ég núna að Ancistran er með hrogn!! allt að gerast!
animal wrote:Slatti af mollý og gubbý. Náði í gærkvöldi 20+ undan Aulanocöru sem ég á og var að sjá núna að Taterurndina Ocellicauda er með seiði hjá mér, ætla að reyna að ná þeim en er ekki of bjartsýnn á það. þarf að fara að smíða rekka þetta gengur ekki lengur!!
Já og svo sé ég núna að Ancistran er með hrogn!! allt að gerast!
Hvernig er það gæta bæði karl og kerla seiðanna hjá ocellicauda ?
hvaða tegund af Aulonocara er þetta ?
Corydoras aenus komu núna í kvöld, ég ætlaði ekki að hafa mig frá búrinu þegar ég sá hvað var í gangi, en var búinn að lofa mér annað svo ég gat ekki fylgst með prósessnum