Hæ. Hefur einhver hér reynslu af því að fjölga Corydoras paleatus? (http://corydoras.com.au/objects/corydoras_paleatus.jpg)
Ég er með karl og kerlu og var að velta því fyrir mér hvort það væri gerlegt?
Corydoras paleatus
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
ég náði undan albino corydoras, var með eina hrygnu og 3 hænga, þegar hún dettur í stuð þá spreðar hún hrognunum útum allt og þeir reyna að frjóva þau. það þarf að taka/loka fiskana síðan frá hrognunum eða öfugt þar sem þeir éta þau á einum - tveimur dögum.
ég klippti blöðin af plöntunni sem hrognin voru og setti í annað búr, það var hrikalegt vesen þar sem ég var með loftstein og ef laufblaðið snérist upp á yfirborðið þá drapst allt. ég gerði síðan mistök að setja seiðin of fljótt með hinum, þau gufuðu öll upp.
vona að þetta hjálpi þér eitthvað!

Þetta er reindar ekki alveg rétt. Parið fer í einskonar T stellingu þar sem kerlan drekkur í sig svilið og dælir því beint í eggin.gudrungd wrote:þegar hún dettur í stuð þá spreðar hún hrognunum útum allt og þeir reyna að frjóva þau.
Sést hér http://breedingcorys.files.wordpress.co ... c10305.jpg
Þá hrygnir hún og grípur eggin með uggunum og klessir þeim svo á glerið eða þar sem henni finnst góður staður
Sést hér http://i39.tinypic.com/r9060w.jpg