Grænn og svartur þörungur....

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Grænn og svartur þörungur....

Post by Gúggalú »

Er í vandræðum með búrið mitt núna. Það leggst svartur þörungur (eða eitthvað) yfir allt gras og mölina í búrinu og á glerið. Á glerinu eru líka grænar þöurngadoppur. Er ekkert hægt að gera til að koma í veg fyrir þetta ? Ég hef skorið niður matargjöf alveg helling en þetta bara versnar. Með kveikt ca 8 tíma á dag. Ætla reyndar að prufa að breiða yfir búrið alveg á nóttunni því hér er farið að koma miðnætursól sem lýsir upp holið en skýn ekki beint á búrið.

Endilega komið með einhverjar hugmyndir. ég er bara með 6 fiska í búrinu þvi að allir nýju fiskarnir drápust. Ætla ekkert að vesenast með nýja fiska fyrr en ég flyt í nýja húsið.... En langar að losna við þetta ógð því að búrið er ljótt. Glerið verður alveg svona skýjað og ljótt
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Þessi svarti þörungur, er hann nokkuð loðinn?

Ég fæ stundum svona grænan þörung en finnst mér ná honum niður með því að þrífa dæluna og skipta reglulega um vatn.
Þú getur alveg skafið þörunginn af með rakvélablaði eða grófu hliðinni á svampi.
Einhverjir nota uppþvottabursta (ég fæ nóg af því öðrum stundum) :P
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

þessi svarti verður loðinn á gróðrinum þegar hann verður mikill og stundum verður alveg svona lag yfir botninum
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það er algjörlega dottið úr mér hvað þessi svarti djöfull gæti verið.
Kannski verð ég glögg á morgun :roll:
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Gúggalú
Posts: 161
Joined: 19 Mar 2007, 21:27
Location: Norðurland

Post by Gúggalú »

prufaðu að fá þér glögg....það kannski hjálpar.... :P

en ég er búin að skafa pínu af glerinu og skipta um smá vatn og þrífa dæluna. ætla að skipta út meira vatni á morgun og svona. Vona bara að ég losni við þetta því að búrið er virkilega sjoppulegt og ljótt :(
One out of three people is mentally ill. Ask two friends how they're doing. If they say they're OK, then you're it
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Er þetta svart/dökkgrænt og er eins og slikja á botninum? Ef svo er þá er þetta cyanobacter, sem þú losnar við með réttum lyfjum.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply