Hvað gerir maður þegar fiskur fær sár?
nefninlega gúramí kellingin mín fékk sár og ég veit ekki hvað ég á að gera.
Ég própfaði að salta smá áðan en hvað á ég að gera meir.
Ef þið vitið það endilega segið mér
Ég skal taka myndir af sárinu.
En þegar þú notaðir þetta lif léstu það í búrið sem allir hinir fiskarnir voru í eða þurfturu að láta fiskinn í sér búr?
Ég var að rækta gúramaog ég setti kellinguna ofaní til kallsins sem var búinn að vera í einhvern tíma í sér búrinu og þá varð hann klikkaður og hann rak hana alltaf útí horn og beit í hana svo ég tók hana uppúr fráhonum svo hún myndi ekki deyja og þá var hún komin með sár á hliðina á sér
Getur saltið haft einhver (slæm) áhrif á aðra fiska?
Það var ráðist á minnsta hákarlinn minn í gær og hann er einmitt líka með sár á hliðinni.
Ég henti honum í gotfiskabúrið og eru nú tveir hákarlar þar í afslöppun.
Nei allavega ef þú hefur ekki of mikið salt.
Ég læt alltaf eina teskeið salt á hvern 10 lítra og það virkar bara fínt og hefur eingin slæm áhrif á fiskana sem eru með veika eða slasaða fisknum í búri.
Það er alveg í fínu lagi að salta aðeins meira en þetta ef einhver sár eru á fiskum. 1 matskeið á hverja 5-10 lítra og meira ef um er að ræða einhverja sýkingu.
hafið bláa hafið wrote:Ég skal taka myndir af sárinu.
En þegar þú notaðir þetta lif léstu það í búrið sem allir hinir fiskarnir voru í eða þurfturu að láta fiskinn í sér búr?
Ég setti lyfið bara með öllum hinum, enda hafði ég ekki annað búr til þess að hafa fiskinn í. Bactopur hefur ekki slæm áhrif á aðra fiska mér vitandi, svo lengi sem maður er duglegur með vatnaskiptin.