Ég var eitthvað að brasa með hendina ofan í búrinu í dag og fór of nálægt clown knife þar sem hann var inní blómapottinum sínum.
Honum hefur brugðið svona svakalega við að sjá hendina að hann fékk alveg kast og þaut útúr pottinum og um allt. Síðan þá (4klst) hefur hann hangið niðri í botninum bakvið plöntu einsog hann sé skíthræddur.
Getur þetta haft einhver áhrif á hann eða þarf hann bara að jafna sig
Hræddur fiskur
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Ég mæli með bráðaáfallahjálp og langvarandi sálfræðimeðferð.
Þetta ætti ekki að hafa nein áhrif, margir fiskar sem sjá illa eins og clow-knive hegða sér svona við eitthvað rask í búrinu en eru yfirleitt fljótir að jafna sig og venjast þessu merkilega hratt. Td var skóflunefurinn hjá mér hrikalega fælinn og gersamlega sturlaðist ef ég setti hendina í búrið, núna kemur hann á móti hendinni eins og hundur í von um matarbita.