Vantar að vita hitt og þetta um sjávarbúr

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
enok
Posts: 95
Joined: 15 Mar 2010, 02:11

Vantar að vita hitt og þetta um sjávarbúr

Post by enok »

Herðu vantar svo að vita smá áður en ég starta 800L búrinu mínu.

Hvað er mælt með að hafa mikin straum í svona búri?? þá meina mikið af dælum.

Hvað þarf ég mikið af ljósi í svona búr.. (ætla ekki að hafa metal halide)

Mundi ég geta slepp því að hafa skimmer og haft í staðinn loft dælu og tunnudælu.

Hvað eru menn að nota til að búa sjálfir til liverock

Hvernir er best fyrir mig að búa sjálfur til (reef safe) bakgrunn.

Hvað get ég gert til að kítta eða líma grjótið saman..


Vonandi að það sé einhver snillingur þarna úti sem getur svarað eitthvað af þessum spurningum mínum

takk takk
User avatar
Einval
Posts: 636
Joined: 24 Feb 2009, 18:52
Location: Reykjanesbæ

grjot

Post by Einval »

aquasafe silicon fæst i husasmiðjunni.notað það til að lima saman grjot

her er eitthvað um að bua til liverock :?:
http://www.youtube.com/watch?v=FUeByMRb ... r_embedded#
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég mæli sterklega með því að hafa skimmer í svona stóru búri. Það borgar sig fljótt upp því saltið er ekki beint gefins, og það þarf að skipta um vatn töluvert oftar í búrum án skimmers.

Rennsli fer eftir því hvað þú ætlar að hafa í búrinu, en það væri ekkert óvanalegt að hafa 8000l/klst flæði úr nokkrum vel staðsettum dælum. Hvernig lýsingu ætlarðu að hafa í búrinu? Þú þarft ansi margar T5 perur allavega, það væri líklega aðeins ódýrara að vera með metal halide, en lýsingin fer mjög mikið eftir því hvað á að vera í búrinu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
enok
Posts: 95
Joined: 15 Mar 2010, 02:11

Post by enok »

ég á 10 55 watta vho perur ætlaði mér að nota þær.. þarf maður helst ekki að hafa watt á líter
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

það er dýrt að skyfta um 10 svona perur á 8 mánaðar fresti. :shock:

svo spilar hæðin líka inní þetta.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Watt per líter á engan vegin við og fer eftir dýpt búrs, tegund pera og hvaða íbúar eru í búrinu.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply