óvenjuleg hegðun

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

óvenjuleg hegðun

Post by anitarikka »

Hæ!
Ég keypti mér um daginn Columbian Shark(eða paroon shark? er ekki alveg 100%) í Dýralandi, þeir virtust svo sprelllifandi og líflegir í búrunum hjá þeim, en strax þegar ég leysti hann í mitt búr datt hann á botninn og lá grafkyrr.
Hann hreyfir sig voða lítið, og ég hef ekki séð hann éta neitt af viti. Hann tekur stundum kyppi, syndir efst í búrið, og fer svo aftur inn í hellinn sinn. Hann vill voða lítið vera á vappi þegar ljósið er kveikt í búrinu, og hann liggur mjög oft á hliðinni!

Ég held nú alveg að þetta kvikindi er ekki með heilsuna heila, hvað ætti ég að gera? Fara með hann aftur og skila honum, eða get ég einhvernvegin lagað þetta? :S
User avatar
ellixx
Posts: 565
Joined: 02 Mar 2010, 12:42
Location: Hafnarfjörður

Post by ellixx »

þarf kanski bara að jafna sig .
hafa slökt ljósinn í nokkra daga.

fékk einu sinni 2 ancistrur í dýraríkinu þær voru hressar í búðinni en þegar heim var komið földu þær sig allan tíman ,borðuðu ekkert og drápust með 2 daga millibili eftir 3-4 vikur :(

síðan hef ég ekki verslað fisk af dýrabúð.

vonandi svarar þér einhver betur ,en þetta er mín reynsla af þessu.

kveðja
Erling
180 lítra juwel.
54 lítra mp. til sölu
30 lítra tetra. gaf brósa :)
1200 lítra rekki. hættur ....... selt ,hent
Canon EOS 500D
Sigma 18-200.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það er frekar mikill munur á columbian shark catfish og paroon/ID shark. Columbian þarf brakish vatn, en paroon eða ID getur verið í fersku vatni.

Hér sérðu mynd af Columbian shark catfish
http://www.liveaquaria.com/images/categ ... -shark.jpg

Hér sérðu mynd af Paroon shark
http://www.seriouslyfish.com/images/pan ... nile_1.jpg

Hér sérðu mynd af ID shark, taktu eftir því að bakugginn er minni á ID.
http://www.scotcat.com/images/p_hypophthalmus3.jpg
400L Ameríkusíkliður o.fl.
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

Post by anitarikka »

hmm.. eg held að þetta sé þá paroon shark :)

hann er allavena ennþá nauthemskur greyjið, ég hafði ljósið slökkt yfir helgina, en engin breyting í hegðun hjá honum :(

eru einhverjir fleiri sem vita eitthvað?
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

það er ekkert eðlilegt við þessa hegðun ef þetta er Pangasius.
Geturu ekki smellt einni mynd af honum ? :)

Pangasius eru sísyndandi, leggjast ekki á botninn nema útaf miklu stressi og eru ekki líklegir til að vera inní helli eins og þú lýstir.
Columbian shark er þó líklegri til að sýna svona hegðun held ég.
Hvað er búrið annars stórt?
-Andri
695-4495

Image
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

Post by anitarikka »

búrið er 60l, skal setja inn mynd í kvöld :)

fiskurinn er samt ekki nema um 10cm
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

60L er ansi smátt, þótt hann sé lítill enn. Ég byrjaði með þann sem ég átti 10cm í 180L búri og stækkaði svo í 720L nokkrum mánuðum seinna.
Minn stækkaði að vísu extra hægt en drapst nýlega því hann hætti að borða, en þetta eru miklir sundfiskar og kemur þunglyndið í honum mér ekki mikið á óvart miðað við búrstærðina (ef þetta er þá Pangasiusinn).
Þótt hann sé kannski ekki stór miðað við búrið vilja þeir mikið sundrými.

Hérna er minn gamli 10cm stór:
Image

20cm, 10 vikum seinna:
Image

35cm:
Image

og tæplega 40cm þegar hann svelti sig í hel:
Image

ég bíð annars spenntur eftir mynd/um af kauða :)
-Andri
695-4495

Image
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

Post by anitarikka »

held að þetta sé nú ekki sama tegund og þú ert með. ég bara steingleymdi að tékka á því hvað kölski heitir :)

samt miðað við hvað hann kostaði, þá held ég að hann verði bara lítið dúllurassgat, ekki monster.

en hérna er mynd af honum, tók hana í flýti, bara í símanum :)

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

verðið segir ekki allt :)
þetta er pangasius hypophthalmus/sutchi og er vissulega "monster".
Þessi tegund er þó aðeins viðráðanlegri en Paroon þar sem þeir stoppa flestir í vexti um 30cm langir, þeir geta þó farið yfir 100cm í náttúrunni, tjörnum og risabúrum.
Ég lenti sjálfur í einum svona sem lá bara útí horni en það lagaðist þegar ég keypti 2 til viðbótar, þetta er hópfiskur og líður best með öðrum þó það sé ekki nauðsynlegt.
Þessi fiskur þarf amk 400L búr þegar hann verður stærri.

hérna er smá texti um tegundina:
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?p=21843#21843
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Svona fisk á ekki að selja í 60 l. búr.
diddi
Posts: 663
Joined: 16 Mar 2008, 23:49
Location: Reykjavík
Contact:

Post by diddi »

man þegar ég var nýbúinn að fá fiskabúr (54ltr) og þá gaur mér í dýraríkinu svona fisk og sagði að hann gæti lifað fínu lífi í 54ltr. var fínn fyrsta daginn og svo byrjaði hann að synda á fullu á glerið og á allt í búrinu. var með hann í 3 daga og skipti á öðrum fisk bara.
anitarikka
Posts: 22
Joined: 06 Oct 2009, 17:00

Post by anitarikka »

ákvað að gefa fiskinum séns á góðu lífi, svo ég gaf hann :)

en einhvernveginn finnst mér að það eigi að vera skylda hjá starfsmönnum sem selja fiska að spurja hvað maður er með stórt búr, þ.e.a.s ef maður er svoldið glær í þessum málum :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

algjörlega, mér finnst það vera að aukast samt en greinilega ekki nógu mikið.
Ég keypti sjálfur þessa sömu tegund og þú fyrir mörgum árum þegar ég átti lítið búr, alveg grunlaus um stærðina.
-Andri
695-4495

Image
Post Reply