Vantar smá upplýsingar, er með einn lítinn Dovi sem virðist hafa tekið aðeins of stórt uppí sig En hann er búinn að vera mepð einhvern fisk uppí sér í þónokkurn tíma og virðist ekki vera ráða við hann. Það stendur bara sporðurinn út úr honum. á ég að reyna ná honum uppúr honum eða leyfa honum bara að basla við þetta?
já hann var búinn að vera með fiskinn uppí sér í 3 eða 4 tíma og hinir fiskarnir voru farnir að narta vel í hann svo ég ákvað að taka hann út úr honum. kjafturinn á honum var allur teygður og lagaðist ekkert fyrr en í morgun