vantar smá hjálp með gróður

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
sandy
Posts: 5
Joined: 03 Feb 2010, 12:41

vantar smá hjálp með gróður

Post by sandy »

ég er með plöntu sem ég veit reyndar ekki nafnið á en hún vex vel og dafnar nema ég held að sniglarnir séu að taka næringuna frá blöðunum því þau eru mörg hver að deyja.

Er gott að kaupa svona gróður áburð einhvern í dýrabúð og gefa gróðrinum og hvernig gróður er gott að hafa í búrum?

kv.
vikar m
Posts: 124
Joined: 10 May 2010, 22:02
Location: akureyri
Contact:

Post by vikar m »

ef þú vilt losna við sníglana bótía. en eru plönturnar en í söklinum væri fínt að fá myndir :P
ég er alveg kex óður í fiska
54l
seyðakassi úr rúmfó
og gullfiskur
http://kaninur-fiskar.blogcentral.is/

:hákarl: :sybbinn:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég efast um að sniglarnir taki næringu frá plöntunni, líklegra er að þú sért ekki með næga lýsingu.

Lýsingin skiptir miklu máli í sambandi við vöxt planta og ekki síður val á plöntum. Ef lýsingin er ekki mikil er hægt að velja plöntur sem þola litla birtu, td. Anubias, Java burkna, Valisneriu osf.
Þú getur fundið út lýsinguna sem þú ert með, með því að deila W í L. T.d ef þú ert með 30 W peru í 60 L búri , þá er lýsingin 30/60 = 0.5 W á L sem væri fín lýsing fyrir flestar plöntur.
sandy
Posts: 5
Joined: 03 Feb 2010, 12:41

vantar smá hjálp með gróður

Post by sandy »

Já lýsingin gæti verið of lítil, ég hef nú ekki pælt mikið í henni þar sem ég keypti svona pakka með öllu og ljósaperan sem er 15W fylgdi bara með.

En það er spurning um að fá sér sterkari peru, hversu sterka ætti ég að fá mér? Búrið er 50L.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þú getur ekki fengið þér sterkari peru, þú þarft að bæta við perustæði eða fá þér peru sem hentar gróðrinum betur, td. gróðurperu.
Annars held ég að málið sé að fá sé bara einfaldan gróður sem þarf lítið ljós.
sandy
Posts: 5
Joined: 03 Feb 2010, 12:41

vantar smá hjálp með gróður

Post by sandy »

Hvar finn ég svona gróðurperu? og já ég skoða þetta með gróðurinn er búin að vera googla myndir af þessum nöfnum sem þú talaðir um og þetta virðist vera fínt sko. Ég get ekki bætt við perustæði, held það sé of mikið vesen :roll:

En takk fyrir ábendingarnar og kannski eitt í viðbót.

Var að pæla í að fara í göngutúr á morgun að finna kannski einhverja steina í búrið.
Hvar er hægt að finna allskonar steina? mér datt í hug Ægissíðan
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Perur sem Vargurinn er að selja

Getur fundið allskonar steina nánast allstaðar.
Ég nota stundum hraun, það er oft skemmtilegt í laginu,
auðvelt að hlaða því upp og gott að festa plöntur á það,
t.d javaburkna og anubias.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Post Reply