Page 4 of 5
Posted: 09 Dec 2009, 13:58
by Squinchy
Nokkrir DR steinar tilbúnir, setti 2 steina í búrið, enginn smá munur á nýja DR og þessu sem ég setti í byrjun sem er orðið að LR
DR neðst vinstramegin
Er búinn að kaupa allt PVC efni sem ég þarf til að breyta búrinu og fæ svo yfirfallið á morgun
Posted: 10 Dec 2009, 23:12
by Squinchy
Fékk yfirfallið í dag
, Þannig að ég tæmdi búrið áðan, setti allt í stórt box, dælurnar og ljósið yfir þannig að vonandi koma ekki upp vandræði þangað til á morgun
Boraði svo tvö göt í vinstra hornið í búrinu, bakið málað svart og yfirfallið límt í, setti búrið örlítið á hlið þar sem það er svo mikið af kalk kóral í botninum á búrinu þannig að ég setti smá vatn í botninn í von um að halda þessu lifandi þangað til á morgun
Kláraði sumpinn í gær og leka prófaði í dag, er ótrúlega sáttur með útkomuna og flæðið er alveg eins og ég vildi
Posted: 11 Dec 2009, 07:44
by Jakob
Nice. Sumpurinn er fínasta smíði bara sýnist mér
Posted: 11 Dec 2009, 23:19
by Squinchy
Já mér sýnist það bara
, en búrið er allavegana komið aftur upp og allt keyrir fullkomlega
, er þó ekkert sérlega sáttur við hvernig ég raðaði LR en það er alltaf hægt að breyta því
Lýsingin er aðeins betri eftir að lokið fór alveg ofan á búrið, langar þó að setja annað sett af 10000k og actinic, ég á auka actinic þannig að ég þarf þá bara aðra 10000k peru
Sumpurinn virkar svona: fyrst kemur bómullar filter svo pláss fyrir kol undir , skimmer, Refugium, loftbólu gildra, Return dæla MJ1000
Svona er svo heildin (Er búinn að færa þessar snúrir hliðina á búrinu bakvið það
), Neðst geymi ég allt sem kemur saltvatns búrunum við
Þarf að þrífa kalkþörunginn af framhliðinni
, áður var þetta falið með ramma sem ég held að ég hafi ekki á búrinu ?
Posted: 11 Dec 2009, 23:21
by Guðjón B
ertu þá búinn að losa búrið við þetta drasl sem var á hliðunum ?
Posted: 11 Dec 2009, 23:27
by Squinchy
Já skimmerinn sem var í vinstri AC dælunni og refugiumið sem var í hægri AC dælunni, fór allt ofan í sumpinn
Posted: 11 Dec 2009, 23:48
by animal
Gott að hafa svona gæja sem eru alltaf að stússa eitthvað, þá þarf maður varla að huxa ef maður er pæla eitthvað, sérstaklega svona verklegt!.
Posted: 11 Dec 2009, 23:51
by Squinchy
Hehe
Posted: 11 Dec 2009, 23:55
by Guðjón B
sorry en mér fannst það líka frekar (ekki fallegt)
Posted: 12 Dec 2009, 00:04
by Squinchy
Haha ekki í fyrsta skiptið sem ég hef heyrt þetta
Er einnig búinn að færa loftdæluna inn á skápinn á 600 lítra búrinu þannig að núna heyrist nákvæmlega ekkert frá þessari stæðu
Svo er auðvitað næturljós
Posted: 12 Dec 2009, 14:44
by grilli
skemmtilegt project!
Posted: 12 Dec 2009, 16:24
by rabbi1991
maður þarf að fara að henda saman svoa næturlýsingu. Svakalega flott. Kaupi bara bláar díóður
Posted: 19 Dec 2009, 20:55
by Squinchy
Posted: 10 Feb 2010, 22:04
by siamesegiantcarp
hvar fær maður svona yfirfall eða er þetta heimatilbúið
Posted: 10 Feb 2010, 22:45
by Squinchy
Ég fékk þá í
Háborg til að beygja 3mm svart plexy í 90° fyrir mig, svo sagaði ég sjálfur "tennurnar" í með lítilli járnsög
Posted: 11 Feb 2010, 00:11
by linx
Hvernig límir þú plexíið við glerið?
Flott kerfi sem þú ert með!
Posted: 11 Feb 2010, 10:52
by Squinchy
Pússaði sirka 1cm brún innan á plexyið sem snýr inn í boxið og límdi svo með sílíkon
Takk fyrir
Posted: 11 Feb 2010, 12:06
by linx
og það heldur alveg? eru engin vandamál með viðloðun?
Posted: 11 Feb 2010, 17:11
by Squinchy
Heldur ekki eins vel og við gler en þetta mun endast eitthvað svo lengi sem maður sé ekki að fikta í þessu
Posted: 11 Feb 2010, 17:41
by linx
kúl!
Posted: 20 Feb 2010, 18:15
by linx
Skimmerinn sem þú ert með, hvernig er hann að standa sig?
og þessar plötur sem þú ert með í sama hólfi, hvaða tilgangi þjóna þær?
Mér fynnst sumpurinn góður hjá þér, ég var sjálfur með svipaðan sump og var mjög sáttur með hann.
Posted: 20 Feb 2010, 18:55
by Squinchy
Skimmerinn er alveg að þjóna sínum tilgang, þarf að fara skipta um loftstein í honum þó
En egg crate plöturnar eru í sér hólfi og er það neðra fyrir poka af kol ef ég vill bæta því við og efri platan heldur filter bómull
Þessi sumpur er að reynast mér mjög vel
Posted: 21 Feb 2010, 11:48
by linx
Þetta er sniðug hönnun hjá þér! ég var alltaf í soldlum vandræðum með filter bómullinn hjá mér.
Posted: 26 Feb 2010, 09:58
by Squinchy
Takk
Er með smá tilraun mér til gamans, í gær færði ég nokkra kóralla úr 125L búrinu yfir í þetta búr til að sjá áhrifin sem actinic hefur á kóralla til lengdar, þar sem ég er ekki með actinic í 125Lbúrinu eru kórallarnir ekki með allann litinn sem þeir eiga möguleika á að hafa
Hérna er mynd af Frogspawn sem fór undir actinic + 10.000k 18 des '09
Og hérna er sami kórall 26. Feb '10
Eins og sést þá er hann búinn að breyta þó nokkuð um lit (Er reyndar ný vaknaður á þessari mynd og ekki búinn að blásasig almennilega út)
Í gær setti ég hinn helminginn af frogspawn í búrið og lítur hann svona út
Frekar fölur og litlaus, verður spennandi að sjá hvað það tekur hann langan tíma að breyta um lit og hvort vöxturinn aukist
Einnig setti ég lítinn green furry mushroom í búrið, hann var nú að sýna fínan lit í 125L búrinu en purning hvað actinic getur náð meir úr honum
Posted: 01 Mar 2010, 23:21
by rabbi1991
hvaða "gras" er þetta á 3 neðstu myndinni?
( mynd 2 )
Posted: 01 Mar 2010, 23:47
by Squinchy
Þetta er cheto þörungur sem er farinn að vaxa í botninum
Posted: 25 Mar 2010, 18:14
by Squinchy
Bætti við í dag tveimur Peppermint shrimp í von um að þær taki Aptasíuna í gegn, reyni að ná myndum af þeim þegar þær eru búnar að venjast búrinu:)
Posted: 04 Apr 2010, 18:59
by Nielsen
damn eftir að hafa lesið þetta og meira um þessi nano SW búr þá hálf sé ég eftir því að hafa sett búrið mitt upp sem FW
Posted: 04 Apr 2010, 20:21
by Squinchy
Þá þýðir ekkert annað en að fá sér annað búr og salta
Posted: 04 Apr 2010, 20:29
by Nielsen
spurði konuna áðan og fékk stórt NEI!!!
er að pæla í nano nano ca. 1.5-2.5 gallon